fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila

Eyjan
Þriðjudaginn 10. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna sem eitt sinn voru, boðar samstarf flokksins við aðra stjórnmálaflokka um framboð til sveitarstjórna og segir hún í Facebook færslu að slíkt samstarf tryggi sterk og samstillt framboð og séu lykillinn að árangri og áhrifum á næsta kjörtímabili.

Orðið á götunni er að þar með sé ljóst að Vinstri græn muni leggja allt kapp á að bjóða fram með öðrum flokkum og með því viðurkenni formaður flokksins að hann eigi lítið erindi í sjálfstætt framboð. Það þyki næsta vonlaust verkefni að ná inn kjörnum fulltrúum án aðstoðar annarra stjórnmálaafla. Skoðanakannanir síðustu mánuði og misseri gefa alls ekki til kynna að VG, sem þurrkaðist með óvenjumiklum glæsibrag út af þingi í síðustu kosningum, sé að ná vopnum sínum á ný.

Orðið á götunni er að VG hafi yfirgripsmikla reynslu af nánu samstarfi við aðra flokka. Nærtækt dæmi um slíkt er þétt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn 2017-2024. Þar sátu saman þessir jaðarflokkar íslenskra stjórnmála og undu glaðir hvor við sitt allt þar til óttinn við kjósendur blossaði upp og flótti hljóp í báða.

Orðið á götunni er að í grunninn séu Sjálfstæðisflokkurinn og VG ekki eins ólíkir flokkar og ætla mætti út frá því að annar þeirra liggur yst á hægri væng stjórnmálanna og hinn yst til vinstri. Þegar allt kemur til alls ganga þeir báðir út á eitt og hið sama; báðir þrá þeir völd og eru til í að gera allt fyrir þau, nema kannski koma naktir fram.

Orðið á götunni er að stórskemmtilegt gæti orðið að sjá sameiginlegan lista VG og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þar gætu verið saman á lista Svandís Svavarsdóttir (eitthvað verður hún að taka sér fyrir hendur og enn er langt í næstu þingkosningar, auk þess sem hún hefur mikla persónulega reynslu af samstarfi með Sjálfstæðisflokknum) og Guðlaugur Þór Þórðarson, sem mjög er rætt um að verði kallaður til bjargar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni. Þarna mætti líka hugsa sér nöfn eins og Stefán Pálsson, Ragnhildi Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur, Líf Magneudóttur, Kjartan Magnússon, Friðjón Friðjónsson og Mörtu Guðjónsdóttur. Ólíklegt er að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir verði þarna því að hún verður vart búin með námsveturinn úti í New York þegar kosið verður.

Orðið á götunni er að mjög skiptar skoðanir séu um það hversu sigurstranglegur sameiginlegur listi VG og Sjálfstæðisflokksins yrði í borginni og óvíst að samstarfið yrði jafn þétt og náið og það var í ríkisstjórn 2017-2021. Hins vegar mætti sameiginlegur listi gera sér vonir um hátt í 20 prósenta fylgi ef marka má niðurstöður þingkosninganna í nóvember sl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Ég er ekki í nestiskulnun

Nína Richter skrifar: Ég er ekki í nestiskulnun
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Verkalýðsforstjórar kasta grjóti úr glerhúsi

Orðið á götunni: Verkalýðsforstjórar kasta grjóti úr glerhúsi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér