fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Bergþór hættir við framboð varaformanns – „Verð blóðugur upp að öxlum í þinginu“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 11. október 2025 16:56

Bergþór Ólason. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, tilkynnti á landsþingi Miðflokksins sem fer fram í dag og á morgun, að hann hafi ákveðið að segja sig frá framboði til varaformanns flokksins. Er ljóst að tíðindin eru nokkuð óvænt, þar sem talið var að Bergþór ætti sætið víst, en hann segir tíma til kominn fyrir breytingar og að fá nýtt fólk til forystu.

Kæru vinir, Rétt í þessu tilkynnti ég fulltrúum á landsþingi Miðflokksins að ég hafi ákveðið að segja mig frá framboði til varaformanns flokksins.

Nú er rétti tíminn til að fá nýtt fólk að forystusveitinni. Ég hef skynjað sterkt vaxandi vilja til að gera breytingar og fá nýtt fólk að borðinu í samtölum mínum við flokksmenn í vikunni. Það er styrkleikamerki og ég fagna því.

Miðflokkurinn er breiðfylking og hefur á að skipa fjölbreyttum og kraftmiklum hópi fólks. Sérstaklega hefur verið gaman að sjá ungliðahreyfinguna okkar eflast og þann stóra hóp ungs fólks sem leggur leið sína hingað á landsþingið.

Í færslu sinni segist Bergþór þó alls ekki hættur, síður en svo:

Ég vil því áfram leggja mitt af mörkum til að gefa nýju fólki tækifæri, með sína nálgun á stór verkefni, undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Ég fer þó ekki langt og verð blóðugur upp að öxlum í þinginu hér eftir sem hingað til að tala fyrir stefnu Miðflokksins en hef nú loks svigrúm til að sinna kjördæminu mínu og ennfrekar málum atvinnulífsins í atvinnuveganefnd. Ekki veitir af.

Takk fyrir stuðninginn. Áfram Miðflokkurinn – Áfram Ísland!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki