„Ein alvarlegasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis er kynferðislegt mansal. Baráttan gegn mansali er brýnt jafnréttismál, en meirihluti þolenda mansals á heimsvísu eru konur og stúlkur og þá ekki síst þegar kemur að kynferðislegu mansali.“
Í grein sinni segir dómsmálaráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, kynbundið ofbeldi vandamál á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum og óhætt að segja að það sé ein stærsta áskorun okkar til þess að koma á fullu jafnrétti kynjanna.
„Ísland er engin undantekning þegar kemur að mansali en hér hefur skipulögð brotastarfsemi aukist verulega og tilkynningum þar sem grunur leikur á mansali hefur fjölgað síðustu ár. Innlendir sem og erlendir brotahópar herja í auknum mæli á Íslands og er landið orðinn áfangastaður fyrir þessa hópa til að stunda iðju sína en ekki bara flutningsleið á milli landa eða heimsálfa. Þessir brotahópar eru margir umsvifamiklir á fíkniefnamörkuðum en þróunin virðist vera í þá átt að nútímabrotastarfsemi einskorðist ekki við einn brotaflokk. Þannig eru þessir hópar jafnvel til viðbótar afkastamiklir þegar kemur að skipulögðu smygli á fólki og mansali.“
Í dag fer fram jafnréttisþing, Mansal; íslenskur veruleiki – áskoranir og leiðir í baráttunni. „Þar ætlum við að fræðast um þróun erlendis, norrænan samanburð á aðferðum og hvaða aðferðir hafa reynst gagnlegar í baráttunni.“
Þorbjörg segir að brýnt sé að hlúa sérstaklega að þolendum mansals og veita þeim viðeigandi aðstoð og stuðning.
„Við eigum að standa vörð um mannréttindi kvenna og sjálfsákvörðunarrétt þeirra yfir eigin líkama. Kynferðislegt mansal er alvarlegt brot á friðhelgi einstaklings og hefur afdrifamiklar afleiðingar í för með sér fyrir einstaklinginn og aðra honum nákomna.
Í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar og Viðreisnar legg ég ríka áherslu á aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, þar á meðal mansali. Ég hef þegar sett af stað vinnu við tímasetta aðgerðaáætlun um þetta mikilvæga mál, þar sem áhersla verður meðal annars lögð á forvarnir, skilvirkar aðgerðir og stuðning við þolendur.“