fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Play kynnir fyrsta áætlunarflugið milli Íslands og Afríku

Eyjan
Þriðjudaginn 5. mars 2024 10:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið PLAY hefur hafið miðasölu til tveggja nýrra áfangastaða. Annars vegar til Marrakesh í Marokkó og hins vegar Madeira í Portúgal. Flogið verður einu sinni í viku á þriðjudögum til Madeira en allt að tvisvar í viku á fimmtudögum og sunnudögum til Marrakesh. 

Fyrsta flugið til Madeira verður 15. október og fyrsta flugið til Marrakesh verður 17. október.Áætlunarflug PLAY til Marrakesh verður fyrsta áætlunarflugið á milli Íslands og Afríku. Flugtíminn til Marrakesh frá Íslandi eru rétt rúmir fimm tímar en til samanburðar er flugtíminn til Tenerife um fimm og hálfur tími.

Borgin Marrakesh uppfyllir kröfur þeirra sem þurfa útrás fyrir ævintýraþrána. Götumarkaðir og einstök byggingarlist setja svip sinn á þessa sögufrægu borg þar sem er hægt að gleyma sér við að skoða handverk innfæddra. Matarmarkaðirnir sem teygja sig út í hið óendanlega eru einnig upplifun út af fyrir sig þar sem bragðlaukar munu sannarlega fá nægju sína.

Eyjan Madeira tilheyrir Portúgal og er flugtíminn frá Íslandi tæpar fimm klukkustundir. Ævintýralegar gönguferðir, sundsprettir með höfrungum og Madeira-vínið bíður þeirra sem sækja eyjuna heim og mun hún sannarlega láta engan ósnortinn.

„Við höldum áfram að stækka úrvalið sem við bjóðum upp á af áfangastöðum fyrir sólþyrsta Íslendinga og er leiðakerfið okkar í suður Evrópu eitt það veglegasta sem sést hefur á Íslandi. Við erum með átta áfangastaði á Spáni og nú þrjá sem tilheyra Portúgal. Þar að auki bætum við hinni töfrandi borg Marrakesh við leiðakerfið okkar og ég hef fulla trú á að Íslendingar muni taka vel í þessar fyrstu áætlunarferðir á milli Íslands og Afríku,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að