fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Eyjan

Hanna Birna, Helgi og Heimir Fannar í stjórn Justikal

Eyjan
Föstudaginn 22. september 2023 11:04

Hanna Birna Kristjánsdóttir, Helgi Hermannsson og Heimir Fannar Gunnlaugsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný stjórn Justikal var kjörin á aðalfundi félagsins á dögunum. Stjórnin er skipuð þeim Helga Hermannssyni, sem jafnframt er stjórnarformaður félagsins, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Heimi Fannari Gunnlaugssyni. Stjórninni er ætlað að styrkja félagið enn frekar fyrir áframhaldandi vöxt innanlands og inn á erlenda markaði.

Helgi er framkvæmdastjóri og stofnandi Sling. Hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri og meðstofnandi Gangverks. Hanna Birna er formaður og meðstofnandi Heimsþings kvenleiðtoga (Reykjavík Global Forum) og ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York. Hún er fyrrverandi þingmaður, borgarstjóri og ráðherra. Heimir Fannar er framkvæmdastjóri Nanitor. Hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi.

Justikal er stafrænt réttarkerfi sem gerir aðilum í dómsmálum kleift að meðhöndla gögn á öruggan og rekjanlegan hátt. Markmið Justikal er að gera málsmeðferðina fyrir dómstólum hraðari, þægilegri og skilvirkari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Að standa með liðinu eða standa með grundvallarréttindum – hvað varð um Piers Morgan?

Að standa með liðinu eða standa með grundvallarréttindum – hvað varð um Piers Morgan?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“