fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Eyjan

Ingveldur tekin við sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dineout

Eyjan
Föstudaginn 1. september 2023 11:45

Ingveldur Kristjánsdóttir Mynd/Marinó Flóvent

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingveldur Kristjánsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rekstrar (COO) hjá Dineout, en um nýja stöðu er að ræða hjá hugbúnaðarfyrirtækinu. Ingveldur mun einna helst sinna daglegum rekstri, áætlanagerð, fjármálum, markaðsmálum og greiningu nýrra tækifæra. Í fréttatilkynningu kemur fram að hún hefur  þegar hafið störf.

Síðustu sex ár hefur Ingveldur rekið sitt eigið markaðsfyrirtæki og aðstoðað hin ýmsu fyrirtæki, meðal annars Dineout, við að gera sig sýnilegri með stafrænni markaðssetningu. Hún hefur einnig komið víða við í atvinnulífinu og hefur til að mynda unnið hjá Hagkaup, Marel og Íslandsbanka. Ingveldur er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í markaðsfræði frá sama skóla.

„Það er frábært að fá Ingveldi formlega inn í sístækkandi teymi Dineout. Hún þekkir reksturinn afar vel, sem og það umhverfi sem við störfum í enda hefur hún unnið með mér sem sjálfstæður ráðgjafi allt frá stofnun Icelandic Coupons, sem sameinaðist Dineout á síðasta ári. Nú er fullkominn tími að fá Ingveldi með okkur í lið þar sem fyrirtækið og kúnnahópurinn stækkar ört, á sama tíma og verkefnum fjölgar, bæði hérlendis og erlendis. Hún býr yfir dýrmætri reynslu sem mun nýtast okkur vel í þeim fjölbreyttu og spennandi verkefnum sem framundan eru,” segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout.

„Það hefur verið lyginni líkast að fylgjast með vexti og velgengni Dineout frá því að ég kynntist Ingu Tinnu og fyrirtækinu fyrir nokkrum árum. Það er því ánægjulegt að fá loks tækifæri til að taka þátt í komandi sókn Dineout sem ætlar sér stóra hluti á markaði sem er í stöðugri þróun og reiðir sig í mun meira mæli á tækni til að auðvelda reksturinn,”segir Ingveldur Kristjánsdóttir, nýr framkvæmdastjóri rekstrar.

Dineout var stofnað árið 2017 af Ingu Tinnu Sigurðardóttur. Hún ásamt Magnúsi Birni Sigurðssyni eru meirihlutaeigendur fyrirtækisins í dag. Fyrirtækið hefur þróað frá grunni kerfi þar sem hægt er að sýsla með allt er viðkemur rekstri veitingastaðar (kráa, bakaría o.fl.) á einum miðlægum stað. Lausnirnar eru meðal annars borðabókunarkerfi, kassakerfi (sölukerfi), matarpöntunarkerfi (take-away), rafræn gjafbréf, vefsíður, tilboð (coupons), viðburðir, salaleiga og veisluþjónusta. Notandi getur ráðið því hvaða vörur nýtast rekstrinum hverju sinni og stýrir öllu í einum bakenda sem er mikil hagræðing og sparnaður. Fyrirtækið heldur úti vinsælasta og stærsta markaðstorgi fyrir veitingastaði landsins á dineout.is. Hjá fyrirtækinu starfa nú 16 manns sem vinna meðal annars að hugbúnaðarþróun, sölu og þjónustu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Furðulegt kosningakerfi

Óttar Guðmundsson skrifar: Furðulegt kosningakerfi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er
Eyjan
Fyrir 1 viku

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar