fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Eyjan

66°Norður áfram á Keflavíkurflugvelli

Eyjan
Mánudaginn 3. júlí 2023 14:49

66°Norður átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur á verslun sem selur útivistar- og lífsstílsfatnað á Keflavíkurflugvelli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

66°Norður átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur á verslun sem selur útivistar- og lífsstílsfatnað á Keflavíkurflugvelli. Verslun 66°Norður verður á sama stað og núverandi verslunin er staðsett en síðar á árinu verður hún endurnýjuð og svo opnuð í endurbættri mynd í lok árs.   

„Við hjá 66°Norður höfum átt farsælt samstarf við Isavia og erum gífurlega stolt og ánægð að fá að halda áfram að bjóða íslenskum og erlendum ferðalöngum upp á frábært úrval útivistarfatnaðar á tollfrjálsu verði. Við verðum áfram á sama svæði en munum breyta rýminu  til hins betra. Við hlökkum til að bjóða gesti Keflavíkurflugvallar velkomna í enn veglegri verslun en áður,“ segir Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður.  

Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og alls sóttu átta aðilar útboðsgögnin þegar opnað var fyrir aðgang að þeim 25. janúar sl. Tveir aðilar uppfylltu hæfiskröfur útboðsins og var boðið að skila inn tilboðum og taka þátt í viðræðuferlinu. Báðir aðilar kláruðu allt ferlið og skiluðu inn tilboðum en á endanum var það 66°Norður sem reyndist hlutskarpara. Við mat á tilboðum var horft til fjárhagslegs hluta sem og tæknilegrar útfærslu. Matsferlið fól í sér að meta gæði tilboðanna en við það er m.a. litið til vöruframboðs, verðlagningar og gæða, þjónustu við viðskiptavini, hönnunar og útlits verslunar, markaðssetningar sem og sjálfbærni.  

„Það er afar ánægjulegt að geta áfram boðið farþegum upp á flottar íslenskar gæðavörur frá 66°Norður á Keflavíkurflugvelli. Eins og við vitum er vörumerkið með þeim þekktari í landinu og fer að auki stækkandi á alþjóðavísu. Við erum stöðugt að bæta þjónustu við farþega og ný verslun 66°Norður mun bjóða upp á enn betri þjónustu, bæði á staðnum og á stafrænan máta. Farþegar munu því geta keypt hágæða útivistarfatnað sem og einstaka gjafavöru og minningu um Íslandsdvölina á leið í flug,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga.  

Útboð á þjónustu á Keflavíkurflugvelli er liður Isavia í því að gera rekstrarumhverfið samkeppnishæft. Félagið býður reglulega út þjónustu og fylgir við það lögum og reglum um opinber innkaup og reglugerð nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk og þjónustu. Þá viðhefur félagið jafnræði, gagnsæi og hagkvæmni og eru öll útboð auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.   

Núverandi verslun 66°Norður er staðsett hægra megin áður en haldið er út landganginn og verður opin þar vel fram á haust. Samkvæmt áætlunum verður svo ný og endurbætt verslun opnuð á sama stað í aðdraganda jóla

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Furðulegt kosningakerfi

Óttar Guðmundsson skrifar: Furðulegt kosningakerfi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er
Eyjan
Fyrir 1 viku

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar