Eyjan

Segir fjármálaeftirlit Seðlabankans bregðast eftirlitsskyldu – Neytendasamtökin undirbúa úttekt á tryggingamálum

Mynd
Mynd: Valli

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðareigenda, segir að iðgjöld bifreiðatrygginga séu óeðlilega há hér á landi og sé fákeppni um að kenna. Hann segir að fjármálaeftirlit Seðlabankans hafi brugðist eftirlitsskyldu sinni með starfsemi og verðskrá tryggingafélaganna.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Blaðið skýrði frá því í síðustu viku að ábyrgðar- og kaskótrygging sé um fimm sinnum dýrari hér á landi en í Svíþjóð og Bretlandi.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að samtökin hafi í hyggju að láta gera allsherjarúttekt á tryggingamálum. Lagaumhverfið hér á landi og annars staðar verði meðal annars borið saman og kannað hvort verðmunurinn skýrist af því að íslensk lög setji þyngri byrðar á tryggingafélög vegna bóta en raunin er í öðrum löndum.

Nánar er hægt að lesa um málið í Fréttablaðinu í dag.