Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og er þegar tekin til starfa í heilbrigðisráðuneytinu. Milla Ósk var áður aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra. Síðastliðinn áratug starfað hún hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og aðstoðarframleiðandi frétta, auk þess að sinna dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Þá var hún um skeið varaformaður Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu. Milla Ósk er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur þar sem hún sérhæfði sig í fjölmiðlarétti, auk þess að leggja áherslu á persónuupplýsinga- og vinnurétt.
Þá hefur Þórlindur Kjartansson verið ráðinn aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ráðið Þórlind Kjartansson í stöðu aðstoðarmanns ráðherra.
Þórlindur er með BA-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og ML-gráðu í lögfræði með sérstaka áherslu á alþjóðalög frá Háskólanum í Reykjavík.
Þórlindur býr að fjölbreyttri reynslu úr atvinnulífinu og þjóðmálum. Hann hefur starfað sjálfstætt undanfarin ár og veitt fjölda fyrirtækja og stofnana margvíslega þjónustu, einkum á sviði stefnumótunar og alþjóðlegra samningamála, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Hann var framkvæmdastjóri rekstrar hjá Meniga á árunum 2012-2015 og stjórnarformaður Innovit-nýsköpunarseturs á árunum 2009-2012.
Þórlindur hefur jafnframt gegnt margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum, var meðal annars formaður Vöku-félags lýðræðissinnaðra stúdenta, stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.