Fyrr í dag var tilkynnt að fyrrum þingmaðurinn Brynjar Níelsson hafi verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra, en áður hafði fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í dómsmálaráðuneytinu, Hreinn Loftsson, einnig verið fenginn til að stoða Jón. Bæði Hreinn og Brynjar eru löglærðir en það er Jón ekki og því líklegt að þeir geti veitt mikilvæga leiðsögn hvað varðar lagaleg mál.
Hins vegar eru ekki allir sáttir með þessa ráðningu. Femínistar á Twitter hafa brugðist hart við, sem og meðlimir í stjórnarandstöðunni en þau benda á að þeir Jón og Brynjar séu ekki réttu aðilarnir til að tækla stóra málið í dag – kynbundið ofbeldi.
Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, segir það beinlínis andfemínískt að Jón og Brynjar verði með málaflokk kynferðisbrota í sínum höndum. „Önnur eins vanvirðing við þolendur og aktívista er vandfundin.“
Nei, þetta er komið gott @vinstrigraen. Það er beinlínis andfemínískt að setja málaflokk kynferðisbrota í hendur þessara manna. Önnur eins vanvirðing við þolendur og aktívista er vandfundin. pic.twitter.com/EpIrUyxBJJ
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) December 2, 2021
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, baráttukona í samtökunum Öfgar, segir það skell að einn þeirra manna sem hafi gagnrýnt hana í kjölfar þess að hún steig fram og benti á þöggunarmenningu sem ríkti innan KSÍ, sé nú kominn í dómsmálin. „Ég titra af reiði“ í öðru tísti spyr hún hreinlega: „Hvaða fokking rugl er þetta?!?!?!?“
Frábært að einn af þeim mönnum sem hefur hjólað í mig sem þolanda ofbeldis sé komin með sæti í dómsmálaráðuneytinu. Ég titra af reiði. https://t.co/lPKxXl6pWa
— Þórhildur Gyða (@torii_96) December 2, 2021
Kvikmyndagerðarmaðurinn Hrafn Jónsson veltir því fyrir sér hvort að þetta sé í framsækin skipun og í takt við áherslur samfélagsins. Fyrrum borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Kristín Soffía Jónsdóttir, skrifar í athugasemd: „Gott máltæki er: „Það vandamál sem einn miðaldra karl getur ekki leyst leysa tveir með bravúr.“
Ahh þetta verður allt mjög prógressíft og í takt við breyttar samfélagslegar áherslur. pic.twitter.com/rAVraKGp1y
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 2, 2021
Þingmaður Pírata Andrés Ingi Jónsson, telur þessa skipan fara illa saman við það sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði í gær um að baráttan gegn kynbundnu ofbeldi verði í forgangi hjá ríkisstjórninni. „Þetta er teymið sem á að stýra baráttunni.“
Forsætisráðherra sagði í gær að baráttan gegn kynbundnu ofbeldi og bætt staða brotaþola verði í forgangi hjá ríkisstjórninni. Þetta er teymið sem á að stýra baráttunni. 🤮🤮🤮https://t.co/VUAn58OJ0a
— Andrés Ingi (@andresingi) December 2, 2021
Þingmaður Samfylkingarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, er á sama máli og Andrés og veltir fyrir sér hvort ekki hefði verið betra að fá inn aðstoðarmann með sérþekkingu á kynbundnu ofbeldi.
Jasso! Datt engum í hug að þörf væri sérþekkingar á kynbundnu ofbeldi? Brynjar og Hreinn aðstoða innanríkisráðherra | RÚV https://t.co/AStNse8gM1
— Sveinbjarnardóttir (@Sveinbjarnar65) December 2, 2021
Leyna Rún Taha Karim, Pírati og varaþingmaður, segir að lengi geti vont versnað og kveðst efast um að það verði byltingarkenndar breytingar á kjörtímabilinu.
Lengi getur vont versnað og allt það. Efast um að einhverjar byltingarkenndar breytingar munu eiga sér stað undir þeirra stjórn en jú endilega leyfum ríkisstjórninni að hefja störf áður en við gagnrýnum þau 🤡 https://t.co/3KSoQ3iOJZ
— Lenya Rún (@Lenyarun) December 2, 2021
Eins og sjá má á viðbrögðunum hér að ofan og svo til viðbótar þeirra sem talinn verða upp hér að neðan eru ekki allir sáttir með nýju vinnu Brynjars og telja það ótækt að nú þegar umræðan um stöðu kynbundins ofbeldis og kynferðisbrota í samfélaginu hefur sjaldan verið jafn hávær séu það menn á borð við Jón Gunnarsson og Brynjar Níelsson sem sé fengið að fást við stöðuna. Sérstaklega virðist staðan leggjast þungt á þá sem skilgreina sig sem femínista eða sem sérstaka stuðningsaðila við femínískar hugmyndir.
Telja sumir það ljóst að þeir Jón og Brynjar muni ekki beita sér með þeim hætti sem þarf til að ráða bóta á stöðunni í málaflokknum.
Þessi þrenning er núna ábyrg fyrir Útlendingastofnun. Þó þjónusta við umsækjendur um vernd hafi sem betur fer verið færð yfir til félagsmálaráðuneytis, þá eru dvalarleyfi, veiting verndar og landamærin eins og þau leggja sig á þeirra könnu. pic.twitter.com/qc5EiiWhno
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) December 2, 2021
BN er svona aðstoðamaður sem segir „Nei, ég nenni því ekki“ – týpan. Og ráðherra fellir verkefnið niður.
— Sigursteinn Sigurðz 🇵🇸 (@gjafi_sigur) December 2, 2021
Bromálaráðuneytið pic.twitter.com/1w6xuEfdmA
— Björn Friðgeir Björnsson (@bjornfr) December 2, 2021
Nú verður góða fólkið brjálað https://t.co/xiluLvHAhH
— óskar steinn (@oskasteinn) December 2, 2021
Ríkisstjórnin:. „Við ætlum að berjast á móti kynbundnu ofbeldi og bæta stöðu brotaþola“
Líka ríkisstjórnin: 🤡🤡🤡 https://t.co/ypq7WkIChi
— Stefán Pettersson (@Stebbipett) December 2, 2021
Árið er?
Dómsmálaráðherra: Karl á sjötugsaldri
Aðstoðarmaður 1: Karl á sjötugsaldri
Aðstoðarmaður 2: Karl á sjötugsaldri— Sveinn Arnarsson (@SveinnArnarsson) December 2, 2021
Jón Gunnarsson verður með bæði Hrein Loftsson og Brynjar Níelsson sem aðstoðarmenn. Innanríkisráðuneytið? More like gömlu-kalla-ráðuneytiðhttps://t.co/yzYAqQ0VQR
— Hans Orri (@hanshatign) December 2, 2021
Alltaf gaman að sjá fólk sem finnur opinberum starfsmönnum og opinberum rekstri allt til foráttu en er síðan alltaf fljótt að leyta á jötuna sjálft.
Það vantar allt malt í þetta lið.Brynjar verður aðstoðarmaður innanríkisráðherra https://t.co/g3FJFOCU2z
— Gylfi Guðmundsson (@GuGylfi) December 2, 2021
Eruði að segja mér að Brynjar Níelsson sé aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra og dómsmálakerfið sé á þeirra vakt??? ER EKKI Í LAGI HEIMA HJÁ YKKUR EÐA???
— Kara Kristel (@karafknkristel) December 2, 2021
Brynjar sem aldrei mætir í vinnu? Þetta er STURLUN og þvílík móðgun og sóun á skattfé. Í alvöru talað þarna er um fullkomna vanhæfni að ræða og XD að ganga langt yfir strikið með að pota vinum í "næs stöður" pic.twitter.com/I4ghPFQ6Aj
— Heidrun Arna (@Heidrunarnan) December 2, 2021