Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ræddi um mál Bjarna Benediktssonar og Ásmundarsalar við mbl.is í dag. Þar sagði hann að yfirheyrslur vegna málsins fari fram í næstu viku.
Eftir að málið hafði verið mikið í umræðunni stigu eigendur Ásmundarsalar fram og vildu meina að það hafi verið leyfilegt að vera með 50 manna samkomu í rýminu. Ástæðan sem eigendurnir gáfu var að um væri að ræða verslunarrými. Guðmundur segir að það eigi eftir að koma í ljós í rannsókninni hvort um sé að ræða verslun eða ekki. „Það fer alltaf niður í 10 manns sama hvað leyfið segir,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Þrátt fyrir að fjármálaráðherra hafi verið á staðnum mun ekki vera lögð meiri áhersla á málið samkvæmt Guðmundi. Þá vildi hann ekki segja hvort Bjarni verði boðaður í yfirheyrslu eða ekki. „Það verður bara að koma í ljós,“ sagði hann og því gæti Bjarni verið boðaður í yfirheyrslu. Guðmundur segir að almennt hafi forsvarsmenn fyrirtækja og verslana vera boðaðir í skýrslutöku en einnig þeir sem „sannarlega brjóta sóttvarnarlög“.
Að lokum segir Guðmundur það ekki vera sitt að ákveða hvort þeir sem voru viðstaddir samkomuna í Ásmundarsal verði sektaðir. „Rannsóknin mun leiða í ljós hvort sektað verður eða ekki,“ segir hann.