Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur tjáð sig um það framtak Icelandair að gefa einstaklingum kost á að kaupa hlutabréf í Icelandair fyrir 100 þúsund krónur, og fer nokkuð háðslegum orðum um þetta tilboð.
Sólveig spyr hvort Samtök atvinnulífsins og ríka fólkið fáist til að hækka atvinnuleysisbætur hjá atvinnulausum konum ef þær lofa að byrja á því að kaupa hlutabréf í Icelandair. Leggur hún til að atvinnulausar konur skrifi undir loforðaplagg þess efnis og jafnvel með tíðablóði.
Sólveig segist ætla að senda bréf með þessari hugmynd til Þjóðhagsráðs.
„Frábærar fréttir! Og hér er smá hugmynd (er í svona frumkvöðlaskapi, sköpunarkrafturinn alveg á fullu inní mér): Kannski fást Samtök atvinnulífsins og ríka fólkið til að samþykkja hærri atvinnuleysisbætur handa öllum atvinnulausu konunum ef þær lofa að byrja á því að kaupa hlutabréf í Icelandair um leið og þær fá peninginn. En kannski þyrfti mögulega að láta þær skrifa undir eitthvað svona loforða-plagg (kannski með tíðablóði? vistvænt og sjálfbært?) um að þær myndu kaupa hlutabréfin, til að tryggja að þær færu ekki bara beint í Bónus að kaupa dömubindi, mjólk og brauð fyrir börnin sín. Loforða-plaggið gæti heitað Samfélagssáttmáli Icelandair og atvinnulausra kellinga.
Væri flott að ræða þetta á næsta fundi Þjóðhagsráðs eða hjá þessum Hagfræðingahóp sem stjórnvöld eiga (sem ég kalla alltaf óvart Hagræðingarhóp). Ég ætla að senda bréf til þeirra með þessari hugmynd.Allavegna; mjög góðar fréttir. Áfram Bogi, Áfram Ísland!“