fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Katrín skrifar Katrínu opið bréf – „Við getum ekki búið lengur við þessa bútasaumsaðferð“

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 26. ágúst 2020 12:20

Katrín Oddsdóttir og Katrín Jakobsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélagsins, skrifaði opið béf til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, sem birtist á Vísi í dag. Í bréfinu biðlar Katrín Oddsdóttir til Katrínar Jakobsdóttur að breyta um skoðun í stjórnarskrármálinu, en bréfaskrifarinn segist vera með„ sextánþúsundogeitthundrað“ ástæður sér til rökstuðnings og bendir á þessa vefsíðu.

Formaður Stjórnarskrárfélagsins bendir á að þjóðin hafi nú þegar kosið um nýja stjórnarskrá og að stjórnarskráin sé samfélagssáttmáli. Þar af leiðandi hafi þjóðin, sem sé stjórnarskrárgjafinn, tekið ákvörðun í málinu.

Hún segir við forsætisráðherra að nú sé mikilvægt að finna kjark og hlusta á fólkið í landinu.

Hér að neðan má lesa bréf Katrínar Oddsdóttur til Katrínar Jakobsdóttur:

„Kæra Katrín, ég vona að þú hafir það sem allra best.

Mig langar til að benda þér á sextánþúsundogeitthundrað ástæður til þess að breyta af leið í stjórnarskrármálinu. Þessar ástæður er að finna hér og þeim fjölgar um mörghundruð á hverjum degi.

Eins og við vitum báðar þá gengur það ekki upp í lýðræðissamfélagi að Alþingi boði til þjóðaratkvæðagreiðslu meðal kjósenda en velji svo að hunsa niðurstöðuna. Árið 2012 sögðu kjósendur með skýrum hætti að leggja skyldi nýju stjórnarskrána til grundvallar sem stjórnarskrá Íslands. Það þýðir að sjálfsögðu ekki að plaggið verði að vera algerlega ósnert af Alþingi, sem getur gert breytingar á henni séu þær almenningi í hag. Hins vegar er alveg skýrt að nýja stjórnarskráin er heildstætt plagg og hana verður að leggja til grundvallar sem slíka ef ætlunin er að virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Stjórnarskrá er samfélagssáttmáli. Sáttmáli sem þjóðin setur til að afmarka hvernig þeir einstaklingar sem hún velur hverju sinni megi fara með völdin. Hvaða gildi skuli höfð að leiðarljósi við meðferð ríkisvaldsins og hvernig valdinu skuli dreift. Samfélagssáttmáli kveður í raun á um hvers vegna við viljum vera samfélag og hvernig samfélag við veljum okkur. Á honum byggja öll önnur lög í landinu. Við getum ekki búið lengur við þessa bútasaumsaðferð Alþingis sem virðist telja eðlilegt að skammta þjóðinni vald úr krepptum hnefa, vald til að setja leikreglurnar sem þingmönnum ber að fylgja. Þessi aðferð er einfaldlega röng í ljósi þess að þjóðin hefur þegar sagt hvaða samfélagssáttmála hún vill.

Nú er mikilvægt að finna kjark til að hlusta á fólkið í landinu og leggja nýju stjórnarskrána til grundvallar og veita henni þinglega meðferð áður en þessu kjörtímabili lýkur. Ef þið sem sitjið nú við völd sjáið ykkur ekki fært að gera það legg ég til að þið gerið þær breytingar einar að koma stjórnarskrárvaldinu með skýrum hætti í hendur þjóðarinnar þar sem það á heima. Þetta getið þið gert með því að mynda samtöðu um það að breyta því hvernig stjórnarskránni er breytt og í stað þess að það þurfi tvö þing til breytinga, verði síðasta orðið hjá þjóðinni.

Gleymum því aldrei kæra Katrín að það er þjóðin sem er stjórnarskrárgjafinn.

Gangi þér vel.

Katrín Oddsdóttir“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð