Þingmaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson, furðar sig á því að ekki hafi verið samið við hjúkrunarfræðinga. Hann vakti athygli á færslu hjúkrunarfræðings á Facebook þar sem hún lýsir því að á þessum álagstímum í vinnu hennar, hafi laun hennar lækkað og ekkert sé að frétta í kjaraviðræðum.
Nú um mánaðarmótin var svonefndur vaktaálagsauki tekinn af hjúkrunarfræðingum. Greiðslurnar áttu upphaflega að vera tímabundar til að stuðla að bættri mönnun á vaktir. Aðgerðirnar voru ítrekað framlengdar þar til Landspítalinn ákvað að láta við nema í haust í kjölfar umfangsmikilla hagræðinga í rekstri til að mæta tapi sjúkrahússins.
Hjúkrunarfræðingur á gjörgæslunni í Fossvogi vakti athygli á stöðunni en laun hennar lækkuðu um 41 þúsund krónur núna um mánaðamótin sökum þess að vaktaálagsauki var afnuminn.
Hún skrifaði því færslu á Facebook þar sem hún lýsti álaginu í vinnunni þessa tímanna og hversu súrt það er að hjúkrunarfræðinga séu enn samningslausir og að lækka í launum þegar álagið hefur sjaldan verið jafn mikið.
„Ég vildi óska þess að launaseðillinn minn í dag væri 1. aprílgabb. Launin mín lækkuðu um 41 þúsund krónur í dag þar sem vaktaálagsauki var tekinn af hjúkrunarfræðingum um þessi mánaðamót. Ég var að koma úr frábæru og gefandi vinnunni minni á gjörgæslunni í Fossvogi, starfinu mínu sem ég elska! Vaktin var sérlega strembin í dag, ég sinnti tveimur sjúklingum með covid19 í öndunarvél ásamt því að leiðbeina frábærum bakverði sem kominn er til að aðstoða á erfiðum tímum. Ég var klædd í hlífðarfatnað í 7,4 klst með tilheyrandi óþægindum til að forðast smit. Á morgun ætla ég að vinna aukalega morgunvakt og næturvakt vegna erfiðra aðstæðna á deildinni (eitthvað sem allir sem vinna þar gera við þessar aðstæður). Og hjúkrunarfræðingar eru samningslausir… og já og launin mín lækkuðu um 41 þúsund krónur í dag. Það hlýtur einhver að setja bráðum við mig og samstarfsfólk mitt 1. apríl… eða ekki.“
Logi Einarsson vakti athygli á færslunni og sagði þetta ósmekklegt og ekki mikinn þakklætisvott til þeirra aðila sem nú standa vaktina fyrir okkur öll í samfélaginu.
„Þetta eru nú ekki mjög smekkleg skilaboð eða þakklætisvottur til fólksins sem stendur í framlínunni við erfiðar aðstæður á hrikalegum tímum.
Það þarf að semja strax við hjúkrunarfræðinga og aðrar stéttir sem ósamið er við“