fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Svandís stígur til hliðar vegna veikinda í fjölskyldu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 7. október 2020 12:07

Svandís Svavarsdóttir,

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, mun stíga tímabundið til hliðar eftir fund ríkisstjórnarinnar í dag vegna veikinda innan fjölskyldunnar. Stundin greindi fyrst frá.

Svandís greindi frá því í sumar að dóttir hennar, Una Torfadóttir, hafi greinst með alvarleg veikindi, heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Svandís greindi frá í færslu á Facebook þar sem hún sagði :

„Kæru vinir, nýlega greindist Una dóttir mín með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Nú tekur við löng og ströng krabbameinsmeðferð. Mitt verkefni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjölskyldu og vinum. Þetta er stærsta verkefni lífs míns.

Ég ætla, með hjálp samstarfsfólks og fjarfunda, að sinna áfram störfum heilbrigðisráðherra og mun skipuleggja mína vinnu á næstunni í samræmi við breyttar aðstæður.

Vísa má í þessa færslu en ég mun ekki fjalla meira um þetta mál opinberlega að svo stöddu.“

Stundin vísar til þess að hafa heimildir fyrir því að frekari veikindi hafi komið upp í fjölskyldu Svandísar og það, auk veikinda Unu, hafi orðið til þess að hún tók ákvörðun um að stíga nú tímabundið til hliðar til 15. október.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun gegna störfum Svandísar í fjarveru hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki