fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Icelandair stefnir á að ljúka samningum í vikulok – Gengisveiking styður við endurreisn félagsins

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 28. júlí 2020 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefnt er að því að ljúka samningum Icelandair Group við lánardrottna fyrir lok vikunnar. Um 15 lánardrottna er að ræða. Viðræðurnar eru komnar mislangt á veg og samningsatriðin eru misjöfn. Starfsfólk Icelandair og ráðgjafar, innlendir og erlendir, koma að viðræðunum.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair. Hann sagði einnig að það væri markmið fyrirtækisins að ljúka samningum við helstu hagsmunaaðila, leigusala og fleiri í þessum mánuði. Samþykkt kjarasamnings við flugfreyjur er að hans sögn mikilvægur hluti af endurskipulagningu félagsins.

Tekist hafi að tryggja samkeppnishæfni og sveigjanleika félagsins um leið og starfskjör flugfreyja og flugþjóna voru varin. Samningar við flugfreyjur og við flugmenn og flugvirkja séu ein af forsendum endurskipulagningar félagsins.

Aðspurður sagði Bogi Nils að gengisveiking krónunnar að undanförnu styrki rekstrargrundvöll félagsins þar sem nær öll laun séu greidd í íslenskum krónum en tekjurnar séu að mestu í erlendri mynt.

Samkvæmt ársfjórðungsuppgjöri Icelandair sem var skilað til Kauphallar Íslands í gær var tap félagsins á öðrum ársfjórðungi 12,3 milljarðar króna. Framboð í farþegaflugi dróst saman um 97% og farþegum fækkaði um 98%. Á fyrri helmingi ársins nam kostnaður félagsins vegna kórónuveirunnar 30,3 milljörðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki