fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Þjóðkirkjan: Messufall vegna samkomubanns og fermingar falla niður

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 13. mars 2020 13:38

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt messuhald og vorfermingar falla niður í Þjóðkirkjunni vegna Covid-19 sjúkdómsins. Ákvörðunin er tekin með almannaheill í huga og gildir á meðan samkomubann er í gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þjóðkirkjunni.

„Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær farið verður af stað aftur með hefðbundið starf. Ákvörðun biskups Íslands verður endurskoðuð í samhengi við frekari ákvarðanir stjórnvalda.

Hins vegar verður streymt frá messuhaldi á netinu þann tíma sem almennt messuhald fellur niður. Prestar landsins halda áfram að gegna mikilvægri sálgæsluþjónustu með öllum þeim varúðarsjónarmiðum sem landlæknir hefur gefið út. Boð þess efnis fóru frá biskupi Íslands út til presta rétt í þessu.

Ljóst er að þessi ákvörðun setur þann einstaka viðburð sem ferming er hverjum einstaklingi og fjölskyldu hans í erfiða stöðu. Fermingardagur er tímamótaviðburður í lífi einstaklinga – um leið er dagurinn oft mikið ættar- og vinamót. Þetta er því þung ákvörðun að taka, en um leið afar mikilvæg og tekin með velferð fólks í huga.

Framundan er mikil áskorun fyrir íslenskt samfélag að takast á við þennan vágest sem COVID-19 er. Þar mun fullur sigur vinnast með samtakamætti, samheldni og ábyrgð – trú, von og kærleika.

Sem stendur er gert ráð fyrir sumarfermingum og haustfermingum. Allar nánari útfærslur verða gerðar í samráði presta og safnaða. Við hvetjum því alla að hafa samband við sinn prest eða kirkju varðandi framhaldið.

Næstu dagar munu einkennast af snörum vendingum, nýjum upplýsingum og hröðum skiptingum. Það er því afar mikilvægt að fylgjast vel með og samtaka að fylgja fyrirmælum stjórnvalda.

Biskup Íslands mun ávarpa þjóðina í útvarpsmessu á sunnudag. Að þessu sinni verður útvarpsmessan frá Reynivöllum í Kjós þar sem sr. Arna Grétarsdóttir þjónar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð