fbpx
Föstudagur 26.september 2025
Eyjan

ASÍ og BSRB stofna rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 14. október 2019 16:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþýðusamband Íslands og BSRB hafa ákveðið að setja á fót rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Norræn heildarsamtök á vinnumarkaði starfrækja mörg hver slíkar stofnanir og er því sérstakt ánægjuefni að íslenska verkalýðshreyfingin stígi nú þetta stóra skref. En ekki eru fordæmi fyrir því hér á landi að samtök launafólks standi að stofnun rannsóknarseturs á borð við þetta.

Tilgangurinn er að bæta þekkingu á lífsskilyrðum launafólks og brúa bilið milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum. Hún verður þverfagleg og sjálfstæð í sínum störfum.
Til að skapa rannsóknarstofnuninni rekstrargrundvöll tryggja ASÍ og BSRB sameiginlega fjármagn og aðstöðu undir reksturinn. Vonir standa til þess að stofnunin hefji starfsemi sem fyrst.

„Það er von mín að með nýrri rannsóknarstofnun fáum við betri upplýsingar um stöðu vinnandi fólks og hvernig bæta megi hag almennings. Það skiptir miklu máli að búa til og miðla þekkingu á okkar eigin forsendum,“

segir Drífa Snædal, forseti ASÍ.

„Félagar okkar á hinum Norðurlöndunum hafa byggt upp sambærilegar rannsóknarstofnanir með góðum árangri sem hefur stuðlað að bættri þekkingu á vinnumarkaðsmálum. Því er fagnaðarefni að þetta verði loks að veruleika hér á landi. Það er brýnt að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðsmála og hér leggjum við grunninn að mikilvægari stofnun,“

segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: SA reyna að slá ryki í augu fólks – skammast sín samt pínulítið

Orðið á götunni: SA reyna að slá ryki í augu fólks – skammast sín samt pínulítið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorgerður Katrín: Lýðræðið snýst ekki bara um leikreglur heldur líka gildi einstaklinganna – popúlisminn er ógn

Þorgerður Katrín: Lýðræðið snýst ekki bara um leikreglur heldur líka gildi einstaklinganna – popúlisminn er ógn
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flækjusaga af rugluðu regluverki

Sigmundur Ernir skrifar: Flækjusaga af rugluðu regluverki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ráðherra afboðar þátttöku á haustfundi SVEIT eftir áskorun Eflingar

Ráðherra afboðar þátttöku á haustfundi SVEIT eftir áskorun Eflingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hvernig tæki Kjartan fjármál föstum tökum? Glímuskjálfti einkennir minnihlutann í borginni

Orðið á götunni: Hvernig tæki Kjartan fjármál föstum tökum? Glímuskjálfti einkennir minnihlutann í borginni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að geta bara gert eitt í einu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að geta bara gert eitt í einu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áhrifarík þingræða Heiðu – „Sagðist hafa íhugað sjálfsvíg kvöldið áður“

Áhrifarík þingræða Heiðu – „Sagðist hafa íhugað sjálfsvíg kvöldið áður“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilju berst stuðningur úr óvæntri átt – hefnd og sögulegar sættir?

Orðið á götunni: Lilju berst stuðningur úr óvæntri átt – hefnd og sögulegar sættir?