Rithöfundurinn Hermann Stefánsson segir að innan fárra ára verði sæstrengur algjörlega úrelt fyrirbæri. Því verðir aldrei lagður sæstrengur til Íslands og að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hann væri eins og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um símastaura eða ritvélar.
Þetta kemur fram í pistil Hermanns á Stundinni. Þar segir hann meðal annars:
„Því að það eru vel á annað hundrað ár síðan fyrstu tilraunir með þráðlausan flutning rafmagns hófust í heiminum. Serbísk-bandaríski uppfinningamaðurinn Nikola Tesla byggði hinn svokallaða Tesla-turn í New-fylki rétt eftir aldamótin 1900. Upphaflega var turninn hugsaður fyrir símskeyti og myndsendingar en svo var markið sett hærra og stefnt að þráðlausum flutningi orku. Þvínæst var stefnt að ótakmarkaðri framleiðslu á orku sem mætti senda þráðlaust um veröld víða. Það hljómaði eins og geðbilun en hélt þó áfram um langa hríð áður en Tesla missti fjárfestana.“
Hermann bendir á að tækni þráðlausra orkuflutninga fleygi mjög fram og að Evrópusambandið noti aldrei orðið sæstreng heldur tali um „burðarmannvirki yfir landamæri.“
Hann segir enn fremur:
„Það þarf því ekki mikinn tæknispeking til að spá því að þegar upp er staðið verði það sem nú er talað um sem stærstu framkvæmd Íslandssögunnar, að leggja sæstreng, kannski ekki meira mál en að hamra nokkrar skipanir á lyklaborð til að breyta stillingu gervihnattar.“