Staksteinar Morgunblaðsins hæðast að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra í dag og rifja upp nýlegar fréttir um að skólastjóri Hagaskóla, Ingibjörg Jósefsdóttir, hafi ekki verið virt svars þegar hún reyndi að fá áheyrn hjá borgarstjóranum vegna mygluvandamála og heilsuspillandi lofts í skólanum. Eftir fimm vikur höfðu engin svör borist frá borgarstjóra við erindi skólastjórans. Staksteinar segja:
Ítrekað hafa komið fram kvartanir um að borgarstjóri sé ekki til viðtals og ýmist svari ekki eða láti vísa á aðra.
En það hlýtur að vera mikið að ef jafnvel skólastjórar í skólum borgarinnar fá ekki svar frá borgarstjóra og gefst ekki kostur á fundi.
Spurt er síðan hvort borgarstjóri gæti sýnt skólastarfinu í borginni vott af áhuga þó að hann sé upptekinn við að klifra upp í vitana í borginni. Er þar vísað til þess að Dagur klifrað upp í vitann við Sæbraut en mannvirkið var vígt á dögunum. Sjá frétt Morgunblaðsins.