fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Bára hleraði samkvæmt samningi: „Þetta er allt rétt hjá Miðflokknum“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 1. apríl 2019 13:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppfært

Fréttin“ hér að neðan var framlag Eyjunnar til aprílsgabbs gærdagsins og er því uppspuni frá rótum líkt og glöggir lesendur uppgötvuðu samstundis.

Góðar stundir.

 

Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtal þingmanna á Klaustri bar þann 20. nóvember í fyrra, hefur gengist við ásökunum Miðflokksins um að hlerunin hafi verið skipulögð. Þetta viðurkenndi Bára fyrir ritstjórn DV í dag.

Falla öll vötn til Framsóknar

Bára sýndi DV samning sem hún gerði við Framsóknarfélagið Sauðskinnsskó & silkisokka í Guðmundarfirði, en formaður þess er hinn sérlundaði milljarðamæringur, Marteinn. U. Unnsteinsson, sem gegnt hefur trúnaðarstörfum fyrir Kaupfélag Bolvíkinga og var í 4. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins á Ísafirði í Alþingiskosningunum 1984.

Marteinn er vel tengdur innan Framsóknarflokksins, en hann er guðfaðir stjúpsonar Sigursteins Breiðfjörð,  fyrrum gjaldkera Framsóknarflokksins, en Sigursteinn og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, eru fjórmenningar.

Hefur Marteinn fjármagnað ýmsa viðburði á vegum Framsóknarfélagsins í gegnum tíðina, en hann styrkti til dæmis hrútasýningu Búnaðarfélags Vatnsvíkur árið 2003 um 200 þúsund krónur og gaf út fjórblöðunginn Gamansögur af Framsóknarmönnum árið 1979.

Þá á Marteinn ráðandi hlut í sláturfélagi Vatnsvíkur, Síðuspiki, en Marteinn efnaðist gríðarlega á árunum 1980-1983, með sölu á Betamax myndbandstækjum.

Eitt stórt samsæri

Í samningnum kemur fram að Bára taki að sér upplýsingaöflun gegn verktakagreiðslu, að upphæð 300 þúsund krónum. Bára segir við Eyjuna að hún hafi ekki lengur getað haldið þessu leyndu lengur, nú þegar myndbandsupptökur sýndu hið sanna eðli málsins.

Segist Bára vera fórnarlamb aðstæðna og hún hafi lent á milli steins og sleggju í pólitískum átökum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Framsóknarflokksins:

„Þetta er allt rétt hjá Miðflokknum. Þetta er eitt stórt samsæri.“

Sökum lagaflækja má Eyjan/DV ekki birta samninginn í heild sinni á miðlum sínum, en verður hann til sýnis milli klukkan 12-16 í móttöku Frjálsrar fjölmiðlunar á annarri hæð að Suðurlandsbraut 14 í dag.

Hinsvegar má birta eftirfarandi skjáskot af samningnum:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2