fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Eyjan

Prentmet kaupir prentsmiðjuna Odda

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 20. mars 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Prentmet og Oddi hafa komist að samkomulagi um að Prentmet kaupi alla prentvinnslu Odda ásamt tækjum. Kaupin eru gerð meðal annars með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Sameinuð prentsmiðja verður rekin að Höfðabakka 7 þar sem Oddi er til húsa, en rúmlega 100 manns munu starfa hjá sameinuðu fyrirtæki. Sameinuð velta fyrirtækjanna var um 1900 milljónir króna árið 2018. 

Í tilkynningu frá Prentmet segir að íslenskur prentiðnaður sé í harðri alþjóðlegri samkeppni þar sem samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu hefur beðið hnekki, meðal annars vegna gengis- og launaþróunar. Prentmet mun snúa vörn í sókn til að tryggja framleiðslu á prentverki á Íslandi til lengri tíma. Með kaupunum verður til sterkt fyrirtæki á íslenskum prentmarkaði sem getur boðið upp á heildarlausnir í prentverki og fyrsta flokks þjónustu, byggt á áratuga reynslu og þekkingu beggja aðila.

Prentsmiðjan Oddi er 76 ára gamalt félag sem upphaflega var stofnað um prentverk en hefur einnig framleitt og flutt inn gæðaumbúðir síðastliðin ár. Sala á framleiðsluhluta Odda felur í sér lokaskrefið í grundvallarbreytingu félagsins úr framleiðslufélagi í sölu og markaðsfélag sem einbeitir sér að umbúðum og umbúðalausnum til annarra fyrirtækja. Í kjölfar breytinganna mun Kassagerðin ehf., sem er að fullu í eigu móðurfélags Odda, einbeita sér að sölu innfluttra umbúða til viðskiptavina, með enn sterkara vöruvali og öflugri þjónustu.

Prentmet var stofnað árið 1992 og rekið af þeim hjónum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir með hraða, gæði og persónulega þjónustu að leiðarljósi, og hefur verið fullbúin prentsmiðja frá 1995. Frá þeim tíma hefur Prentmet aukið við þjónustu og gæði í íslensku prentverki og fært jafnt og þétt út kvíarnar, m.a. með kaupum á prentverki um allt land. Guðmundur Ragnar var á meistarasamning hjá Odda 1985-1988 og nam í framhaldi nu nám í Rekstrarfræðum við Háskólann á Bifröst. Í kjölfar kaupa á prentvinnslu Odda verður hið sameinaða fyrirtæki enn betur í stakk búið til að sinna öllum prentverkefnum frá upphafi til fullbúinnar.

,,Kaupin á prentvinnslu Odda eru frábært tækifæri fyrir okkur, og munu hjálpa mikið til við að auka samkeppnishæfni íslensks prentverks ásamt því að auka vöruúrval og þjónustustig fyrirtækisins,” segir Guðmundur Ragnar, framkvæmdastjóri Prentmets. ,,Staðan í prentiðnaðinum hér á landi er þannig að það er nauðsynlegt að sameina fyrirtæki og efla iðnaðinn til framtíðar. Við hjónin teljum okkur vera að taka stórt skref í þá átt með þessum kaupum.”

Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Odda segist ánægður fyrir hönd íslensks prentiðnaðar að þessi kaup hafið verið undirrituð. ,,Með þessari sameiningu stendur öflugra félag eftir sem getur tryggt íslenskt prentverk og framleiðslu inn í framtíðina. Ég hef fulla trú á þeim hjónum Guðmundi Ragnari og Ingibjörgu Steinunni í næstu skrefum og hlakka til að fylgjast með þeim í framtíðinni.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr