fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Bankaráð Landsbankans segir launahækkun bankastjórans í samræmi við starfskjarastefnu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 11. febrúar 2019 18:30

Mynd:DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áttatíu prósenta launahækkun bankastjóra Landsbankans hefur vakið harða gagnrýni. Bankaráð Landsbankans sendir nú undir kvöld frá sér tilkynningu þar sem hækkunin er útskýrð. Er hún sögð vera í samræmi við starfskjarastefnu bankans og að laun bankastjórans hefðu verið búin að dragast mjög aftur úr launum annarra bankastjóra. Tilkynningin er eftirfarandi:

Hækkun á launum bankastjóra Landsbankans hefur verið gagnrýnd. Sú gagnrýni er skiljanleg, enda er Landsbankinn að langstærstu leyti í eigu ríkisins. Undanfarna daga hefur launahækkunin verið sett í samhengi við almennar umræður um kjaramál. Bankaráð er meðvitað um að kjör bankastjóra eru vissulega góð en þau eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans, sem hluthafar hafa samþykkt, um að starfskjör eigi að vera samkeppnishæf en þó ekki leiðandi.

Að mati bankaráðs hefur lengi verið ljóst að breyta þyrfti kjörum bankastjóra Landsbankans og færa þau nær þeim kjörum sem starfskjarastefnan kveður á um. Þegar ákvörðun um laun bankastjóra Landsbankans og fleiri stjórnenda voru færð undan kjararáði með lögum sem Alþingi samþykkti, hafa laun bankastjóra Landsbankans hækkað tvívegis, annars vegar frá 1. júlí 2017 og hins vegar frá 1. apríl 2018. Við þá ákvörðun var ljóst að launin voru lægri en laun æðstu stjórnenda hjá öðrum stórum fjármálafyrirtækjum.

Forsagan er sú að kjararáði var árið 2009 falið að úrskurða um laun bankastjóra Landsbankans. Á sama tíma sagði í eigendastefnu ríkisins að laun stjórnenda ættu að standast samanburð á þeim sviðum sem viðkomandi fyrirtæki starfaði á, án þess að vera leiðandi. Þessi tilhögun var gagnrýnd af þáverandi bankaráði Landsbankans en beiðnir til stjórnvalda um breytingar náðu ekki fram að ganga. Afleiðingin varð sú að í mörg ár voru kjör bankastjóra Landsbankans töluvert lægri en laun hjá stjórnendum sambærilegra fyrirtækja. Þau voru jafnframt lægri en laun framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þær breytingar sem bankaráð hefur nú gert á kjörum bankastjóra Landsbankans eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans sem hluthafar hafa samþykkt og hefur verið óbreytt í mörg ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að