„Starfsmenn Seðlabanka Íslands máttu þola það í nokkurn tíma að hafa fyrir augum málverk eftir Gunnlaug Blöndal þar sem nakinn kvenmannslíkami blasti við. Þeir þoldu þetta víst flestir án þess að líða umtalsverðar andlegar kvalir – samt ekki allir. Einum ofur viðkvæmum starfsmanni var svo misboðið að hann kvartaði undan nektinni. Kvörtunin var sett í langt og strangt ferli sem loks fékkst niðurstaða í.“
Svona hefst leiðari Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu, þar sem fjallað er um þá umdeildu ákvörðun Seðlabanka Íslands að verða við einni kvörtun starfsmanns um nektarmálverk eftir Gunnlaug Blöndal, með því að flytja verkin í geymslu bankans.
Skiptar skoðanir eru þó sagðar innan bankans varðandi þá ákvörðun að verða við kvörtuninni, en myndirnar hafa verið settar í geymslu um ókomna tíð.
Þá furða margir sig á samfélagsmiðlum yfir ofurviðkvæmni þess sem kvartaði.
Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur skrifar Bakþanka um málið, hvar hann fer hamförum í háði og spotti:
„Hinn alræmdi klámhundur Gunnlaugur Blöndal hefur nú verið settur í dýflissu. Eða öllu heldur málverk eftir hann. Í því svartholi er nóg pláss, verkið er geymt þar sem gullforði Íslendinga ætti að vera. Hugguleg manneskja gekk um ganga Seðlabanka Íslands og sá málverk eftir Gunnlaug Blöndal (örugglega bróður Audda Blöndal) og hún hugsaði, „ég er nóg – og mér er nóg boðið“ og hún fór fram á það að málverk af berum kvenmanni yrði fjarlægt úr musteri mammons. Er í því framhaldi rétt að minna á hið gamla spakmæli: „Þú skalt ekki aðra guði hafa.“
Þá segir Guðmundur einnig:
„Ég sá berstrípuð hross úti í haga í gær, þau misbuðu blygðunarkennd minni, þau voru nefnilega að ríða – sjálf altso. Mannlaus. Ég mun í framhaldinu hafa samband við sláturleyfishafa um land allt, en græt um leið að ekkert af komandi hrossakjöti getur farið í bjúgu – næg er nú tittlingadýrkunin. Seðlabanki Íslands hefur löngum verið hof kláms og hamslausrar frygðar. Eða hver kannast ekki við mánaðarlegar orgíur peningastefnunefndar og bersöglar frásagnir hennar af stýrivöxtum með stöðuga standpínu? En nú er Gunnlaugur Blöndal á braut. Það veit á gott.“
Kolbrún Bergþórsdóttir fer svipaðar leiðir í vandlætingu sinni á ákvörðun Seðlabankans er hún segir:
„Enginn starfsmaður Seðlabankans þarf því framar að finna fyrir óþægindum eða vera misboðið við að horfa á nektarmálverk eftir einn þekktasta og virtasta listmálara Íslendinga á 20. öld. Starfsmenn Seðlabankans eru þó ekki alveg hólpnir. Einhverjir í þeirra hópi eiga vísast eftir að ramba inn á listasöfn hér á landi og erlendis og þar má iðulega sjá listaverk af beru fólki.“
Og einnig:
„Listaverk eiga að vera þar sem fólk nýtur þeirra, ekki þar sem pempíulegar manneskjur, fátækar í andanum, reka upp hneykslunaróp og krefjast þess að „ósóminn“ verði hið snarasta fjarlægður. Það er stórkostlegur áfellisdómur yfir Seðlabanka Íslands að á slíkt væl skuli hafa verið hlustað.“