fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
Eyjan

Bandaríkjamenn langfjölmennastir

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 7. nóvember 2018 12:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í október síðastliðnum voru um 200 þúsund talsins samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 17.700 fleiri en í október á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

Fjölgunin í október nam 9,7% milli ára en hún hefur einungis mælst hærri tvo mánuði ársins, í maí (13,2%) og september (13,6%).

Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir í október og fjölgaði þeim verulega frá því í sama mánuði í fyrra eða um 35,6%. Fækkun var í brottförum Norðurlandabúa, íbúa frá Bretlandseyjum og Asíu og var hún á bilinu 7,7%-13,2%.

Sé litið til haustsins í heild (september-október) má sjá mun minni fjölgun í brottförum erlendra farþega á árunum 2016-2018 en á árunum 2014 til 2016. Þannig var aukningin 11,8% milli ára 2017-2018 að hausti til, 15,6% milli ára 2016-2017 en 50,2% frá 2015-2016 og 43,6% frá 2014-2015. Bandaríkjamenn hafa borið uppi aukningu haustsins en þeim hefur fjölgað um 40,1%.

Frá áramótum (janúar-október) hafa tvær milljónir erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 5,9% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Verðum sjálf að ráða því við hverja við tölum – stjórnarandstaðan vill ekki talsamband við Evrópu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Verðum sjálf að ráða því við hverja við tölum – stjórnarandstaðan vill ekki talsamband við Evrópu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Bull, lygar og þvæla til að ná fylgi þeirra sem nenna ekki að kynna sér málin

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Bull, lygar og þvæla til að ná fylgi þeirra sem nenna ekki að kynna sér málin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum

Vilhjálmur Egilsson: Ásthildar Lóu málið var verra fyrir Sjálfstæðismenn en málþófið – sátu eftir í fjóshaugnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Heimurinn árið 2030 – Björgun eða voði?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Heimurinn árið 2030 – Björgun eða voði?