fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Skrifstofur Landspítala flytja í Skaftahlíð: „Stjórnendur flýja hávaða og ryk en sjúklingarnir liggja eftir“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 25. október 2018 21:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landspítalinn og fasteignafélagið Reitir undirrituðu í dag langtímaleigusamning um skrifstofuhúsnæði í Skaftahlíð 24, þar sem Stöð 2 og Fréttablaðið var áður til húsa. Skrifstofur spítalans voru áður á Eiríksgötu en flytjast í tvær byggingar í Skaftahlíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reitum.

Framkvæmdir hefjast strax sem miða að því að aðlaga húsnæðið að þörfum skrifstofa Landspítalans.

Gunnar Bragi Sveinsson

Samhliða þessu undirritaði Landspítalinn og Reitir nýjan leigusamning um leigu Landspítalans á Eiríksgötu 5, þar sem aðalskrifstofur Landspítalans eru nú. Því húsnæði verður breytt í göngudeild Landspítala.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, er ekki sáttur og segir á Facebook í kvöld: „Stjórnendur flýja hávaða og ryk en sjúklingarnir liggja eftir.“ Vísar hann til framkvæmda við nýja Landspítalans, greint hefur verið frá því að sprengt verður við Barnaspítalann og hundruð þúsund tonna af jarðvegi flutt í burtu. Miðflokkurinn hefur gagnrýnt byggingaráformin við Hringbraut harðlega. Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi flokksins, tekur í sama streng og Gunnar Bragi og segir í athugasemd:„Ósvífnin á sér engin mörk. Hvað gengur þessu fólki til?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð