fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Segir Ásmund Einar handbendi Þórólfs Gíslasonar-„Ekki ónýtt að eiga sinn eigin stjórnmálaflokk“

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 8. janúar 2018 12:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason

Ritstjórinn Sigurjón M. Egilsson kemur með hressilegt innlegg á Miðjunni í dag, hvar hann segir Ásmund Einar Daðason, félagsmálaráðherra Framsóknarflokksins, vera frambjóðanda Þórólfs Gíslasonar, kaupfélagsstjóra Skagfirðinga. Sigurjón segir að fyrst hafi Gunnar Bragi Sveinsson verið fulltrúi Kaupfélagsins í ríkisstjórn og allt hafi gengið að óskum þangað til að Gunnar Bragi sá til þess að Ísland beitti Rússland viðskiptaþvingunum, með tilheyrandi afleiðingum fyrir Kaupfélagið, þar sem Rússar hættu að kaupa sauðfjárafurðir úr Skagafirði.

 

„Með framgöngu sinni hafði utanríkisráðherrann Gunnar Bragi skaðað, að mati kaupfélagsstjórans, hagsmuni og afkomu hins heilaga Kaupfélags. Slíkt gera menn ekki nema þola refsiaðgerðir fyrir. Kaupfélagið fann sér annan frambjóðanda. Sá mun ekki leika af sér, ekki skaða hagsmuni Kaupfélagsins. Sá heitir Ásmundur Einar Daðason sem í fyrstu tilraun, sem fulltrúi þeirra fyrir norðan, varð ráðherra. Planið virkar,“

 

segir Sigurjón. Hann bætir við að ekki sé amalegt fyrir Kaupfélagið að eiga sinn eigin stjórnmálaflokk:

 

„Eftir að Gunnar Bragi sá að búið var að loka á hann og að hann ætti litla sem enga möguleika til að halda sæti sínu fór hann suður sem fylgdarmaður formannsins fyrrverandi, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Sá var formaður Framsóknarflokksins í áraraðir og þekkir innviði hans og uppbyggingu betur en flestir aðrir. Hann er viss og sannfærður um hver á Framsóknarflokkinn í raun og veru. Það er Kaupfélag Skagfirðinga. Nýjasta ríkisstjórnin er búin að redda sauðfjárbændum og afurðastöðvum, þar á meðal Kaupfélaginu. Kannski bara fyrir horn, en framtíðarredding er eflaust í planinu. Hinu skagfirska plani. Sama er að segja um sjávarútveginn. Veiðigjöldin verða lækkuð og Kaupfélagið verður sátt. Það er virðist ekki ónýtt að eiga sinn eigin stjórnmálaflokk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki