fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Birkir Hólm Guðnason tekur við sem forstjóri Samskipa hf

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. september 2018 15:02

Birkir Hólm Guðnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Samskipa hefur ráðið Birki Hólm Guðnason sem forstjóra Samskipa hf. Áður starfaði Birkir í 18 ár hjá Icelandair, þar af 6 ár á erlendum mörkuðum, en hann var framkvæmdastjóri félagsins frá 2008.

Pálmar Óli Magnússon lætur af störfum að eigin ósk og verður viðloðandi félagið við innleiðingu nýs siglingakerfis Samskipa auk þess að vera Birki innan handar á meðan hann kemur sér fyrir í nýju starfi.

„Við höfum nýlega kynnt nýtt siglingakerfi til að sinna íslenska markaðnum enn betur. Með breytingunum stóraukum við flutningsgetu félagsins, bætum áreiðanleika þjónustunnar og eflum. Við ætlum okkur að spila öflugan sóknarbolta og auka markaðshlutdeild Samskipa. Pálmari erum við þakklát fyrir samstarfið síðastliðin ár og fyrir framlag hans til félagsins. Birki býð ég jafnframt velkominn. Ég þekki hann vel og veit að við erum heppin að fá hann með okkur í lið,“

segir Ásbjörn Gíslason nýr stjórnarformaður Samskipa hf.

Ætlum að sækja fram af miklu afli

Birkir Hólm Guðnason segir að um spennandi tækifæri sé að ræða fyrir sig.

„Ég hef mikla reynslu af rekstrarumhverfi fyrirtækis sem starfar á alþjóðlegum markaði og fyrir mér eru sömu lögmál að verki í rekstri þessara fyrirtækja. Annars vegar erum við að tala um siglingakerfi og hins vegar leiðakerfi. Vinnan snýst að miklu leyti um að veita góða þjónustu, áreiðanleika og aðgengileika á hagkvæman máta og þar sé ég spennandi tækifæri fyrir okkar viðskiptavini. „Together we make things happen,“ er slagorð Samskipa og ég finn mig vel í því og hlakka til samstarfsins. Með bakland í stóru alþjóðlegu fyrirtæki höfum við allt sem þarf til að sækja fram af miklu afli og það verður spennandi að vera hluti af þeim vexti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra