fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór á skilið hrós

Egill Helgason
Mánudaginn 10. september 2018 15:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á skilið gott klapp á bakið vegna greinar sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag í tilefni af því að íslensk sendinefnd situr nú sinn fyrsta fund í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.

Grein Guðlaugs ber yfirskriftina Stöndum vörð um mannréttindi. Það sem vekur mesta athygli er að hann beinir spjótum sínum að Saudi-Arabíu. Nefnir mannskæðar loftárásir þeirra á Jemen og segir svo.

Ég hef gagnrýnt að í mannréttindaráðinu sitja ríki sem frekar ættu að vera umfjöllunarefni ráðsins en sitja í dómarasætinu. Sádi-Arabía, Venesúela og Filippseyjar hafa gerst sek um alvarleg mannréttindabrot – svo þrjú nærtæk dæmi séu nefnd. Við erum óhrædd við að gagnrýna þau og brýna. Um leið væntum við góðs af samstarfi við ríki í ráðinu sem deila með okkur grundvallarafstöðu til mannréttindamála.

Þess er skemmst að minnast að Margot Wallström, utanríkisráðherra Svía, gagnrýndi Sauda vegna kvennakúgunar fyrir fáum árum. Það vakti ekki mikla lukku í Riyadh og bæði Karl Gústaf kóngur og Stefan Löfven skrifuðu leynileg bréf þar sem þeir reyndu að friðmælast við Saudana. Wallström fagnaði því síðar að samskiptin við Saudi-Arabíu hefðu komist í „eðlilegt horf“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug

Undirrita samninga við Neos-flugfélagið um leiguflug
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður

Segir forsetaframboðið ekki vera viðbrögð við því að leggja eigi starfið hennar niður
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón