„Gert er ráð fyrir að Hlemmtorg verði líflegt og mikilvægt borgarrými í miðborg Reykjavíkur til framtíðar. Tillögurnar sem voru valdar í vor, í kjölfar hugmyndasamkeppni um framtíð og þróun Hlemmtorgs fanga anda þess og viðhalda um leið fjölbreyttum samgönguleiðum og mannlífi. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar lét af þessu tilefni framkvæma samgöngutalningu við Hlemmtorg núna í sumar,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Talningar fóru fram valda daga í júní, júlí og ágúst, einn dag í hverjum mánuði. Talið var fjórum sinnum yfir daginn, tvo tíma í senn, frá 8 að morgni til 9 að kvöldi. Einungis var talin umferð inn á torgið til að koma í veg fyrir tvítalningu.
Niðurstöður talninga gefa sterklega til kynna að daglega á milli klukkan 8 og 21 gangi allt að 23 þúsund vegfarendur inn á Hlemmtorg, 1.400 manns hjóli og 7 þúsund bílar aki. Samtals eru því um fleiri en 30 þúsund manns sem fara gangandi, hjólandi eða akandi um Hlemmtorg dag hvern. Nefna má, til að setja tölurnar í samhengi, að 18 þúsund manns búa í Grafarvogi og um 26 þúsund á Suðurlandi.
Þessar talningar verða notaðar við endurhönnun svæðisins og gerð deiliskipulags sem er að fara í gang. En tillögur arkitektastofanna Mandaworks og DLDvoru valdar til áframhaldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir þá vinnu.
Stefnt er að því að nýtt deiliskipulag liggi fyrir í haust og að þá geti hönnunarvinna hafist. Talningarverkefnið við Hlemm verður endurtekið núna í haust. Einnig er stefnt að því að framkvæma sambærilega talningu eftir breytingu torgsins og bera saman við eldri niðurstöður.