Þegar litið er til stjórnmálaskoðana þeirra sem tóku þátt í könnun MMR um gengi karlalandsliðsins í knattspyrnu á HM má sjá nokkurn breytileika á afstöðu svarenda. Stuðningsfólk Miðflokks var líklegast til að telja íslenska landsliðið líklegt til afreka í D-riðli en 79% þeirra spáðu liðinu áframhaldandi þátttöku eftir riðlakeppni.
Stuðningsfólk Viðreisnar (13%) var líklegast til að spá liðinu áfram í 8 liða úrslit keppninnar, stuðningsfólk Miðflokks (18%) var líklegast til að spá strákunum okkar þátttöku í undanúrslitum og stuðningsfólk Pírata (4%) var bjartsýnast á að íslenska liðið tæki silfur í keppninni.
Stuðningsfólk Flokks fólksins (7%) var hins vegar líklegast allra til að telja að Íslendingar munu fara með sigur af hólmi í úrslitaleik keppninnar. Rétt er að nefna að tæp 4% svara bárust eftir að leik Íslands og Argentínu lauk.
Svartsýnastir eru stuðningsmenn Pírata, en 49% þeirra telja að Ísland komist ekki upp úr riðlinum. Það sama segja 48% þeirra sem kusu Samfylkinguna.
Spurt var: „Hversu langt heldur þú að íslenska landsliðið í knattspyrnu nái á HM í Rússlandi?“
Svarmöguleikar voru: „Kemst ekki upp úr riðlinum“, „Kemst í 16 liða úrslit“, „Kemst í 8 liða úrslit“, „Kemst í undanúrslit“, „Kemst í úrslitaleikinn“, „Vinnur keppnina“, „Veit ekki/ vil ekki svara“. Samtals tóku 86,6% afstöðu til spurningarinnar.