Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, grípur til varna fyrir hönd Ísraelsríkis og sigurvegara Eurovision, Nettu Barzilai frá Ísrael, en sigur hennar í söngvakeppninni hefur vakið mikla reiði, í tengslum við hernaðaraðgerðir Ísraelsríkis gegn Palestínu. Björn gagnrýnir Egil Helgason og Samfylkinguna fyrir sína afstöðu gegn gyðingaríkinu:
„Undarlegt er að þeir sem telja sig sig sérstaka varðmenn mannréttinda skuli jafnan vilja beita Ísraela þvingunum eða einangra þá. Eftir að ísraelsk söngkona sigraði í söngvakeppni Evrópu laugardaginn 12. maí sagði Egill Helgason, álitsgjafi og umræðustjóri ríkisútvarpsins, á vefsíðu sinni: „Ísrael á einfaldlega ekki að vera með í Eurovisijón og þjóðir Evrópu eiga helst ekki að sækja keppni þangað.“
Björn líkir orðum Egils við viðskiptabannstillögu Bjarkar Vilhelmsdóttur gegn Ísrael í borgarstjórn árið 2015. Þá spyr Björn hvort það sé stefna Samfylkingarinnar að vilja hlut Ísraels sem „minnstan og verstan“:
„Þarna var um pólitískt mál að ræða sem mótaðist af óvild í garð Ísraels og gyðinga. Svipuð viðhorf birtast nú vegna sigurs Nettu Barzilai í söngvakeppninni. Þannig sagði Sema Erla Serdar, fyrrv. formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og fyrrv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, á FB-síðu sinni laugardaginn 12. maí:
„Með sigri Ísraels í Eurovision hefur Evrópa enn og aftur lagt blessun sína yfir fjöldamorð, landrán, hernám, pyntingar og ómannúðlega og ógeðfellda meðferð ísraelska hersins og ísraelskra stjórnvalda á saklausum palestínskum börnum, konum og mönnum. Þetta er ógeðslegt. Ógeðslegt.“
Er það stefna Samfylkingarinnar að vilja hlut Ísraels sem minnstan og verstan?“
Þá segir Björn að Hamas-samtökin hafi í tilefni af 70 ára afmæli Ísraelsríkis hvatt til stórmótmæla við landamærin og ætli sér að rjúfa landamæragirðinguna til að ryðjast inn í Ísrael. Segir hann grunnt á því góða milli Hamas og Fatah, sem fer með stjórn mála á yfirráðasvæði Palestínumanna og sakar Egil Helgason um að fara mildum orðum um samtökin:
„Ísraelsk stjórnvöld hafa ekki orðið við óskum Fatah að skrúfa fyrir vatn og rafmagn til Gaza-svæðisins til að lækka rostann í Hamas-liðum. Þegar Egill Helgason sætti gagnrýni á FB fyrir afstöðu sína til Ísraels sagði hann meðal annars sér til varnar: „Hamas eru sannarlega hvimleið samtök“ og fór jafnvel mildilegri orðum um þau en löglega kjörin stjórnvöld í Ísrael.“
Líkt og fram hefur komið í fréttum hafa tugir Palestínumanna látist í mótmælunum vegna hernaðaraðgerða Ísraelsríkis, og hefur það orðið til þess að fjöldi fólks hefur mótmælt því að söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva verði haldin að ári í Ísrael og skorað á RÚV að taka ekki þátt.
Björn ýjar að því að ef RÚV myndi sniðganga keppnina, væri það hræsni:
„Ætli stemmningin í Efstaleiti sé sú að ríkisútvarpið skuli hætta aðild að evrópsku söngvakeppninni verði Ísrael ekki rekið úr henni? Ísraelar unnu nú í fjórða sinn.“