fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Eyjan

Vandamálið er fjölgun bíla

Egill Helgason
Þriðjudaginn 13. mars 2018 18:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er eiginlega makalaust hvað hægt er að rífast mikið um bíla. Fátt virðist fólk geta hugsað sér verra en einhvers konar takmarkanir á bílaeign og bílanotkun. Það að eiga bíl hefur ótrúleg áhrif á skynjun fólks á veruleikanum og sjónarmið þess.

Við búum í samfélagi þar sem bifreiðaeign hefur aukist mjög mikið á fáuum árum. Við þetta hafa líka bæst tugir þúsunda bílaleigubíla. Hluti bílaflotans hefur líka stækkað, miklu fleiri en áður aka um á jeppum og jepplingum. Nú er svo komið að það eru fleiri bílar en íbúar í landinu.

Innviðir landsins voru ekki hannaðir fyrir svo marga bíla. Vegirnir úti á landi þola ekki þetta álag. Eldri hverfi borgarinnar byggðust þegar bílarnir voru miklu færri, sum þegar bílaeignin var hundrað sinnum minni.

Mengun vegna bifreiða er orðin mikið vandamál í Reykjavík, hún eykst  jafnt og þétt – á tíma þegar gerðar eru meiri kröfur um umhverfisgæði en áður.

En samt heimtum við að komast greiðlega og hindrunarlaust áfram á bílunum okkar. Þótt þeim hafi snarfjölgað og umhverfið beri ekki þennan fjölda. Við skulum samt.

Eina raunhæfa lausnin sem hægt er að finna á þessum vanda er auðvitað að takmarka bílaumferðina. Fækka bílum sem eru á ferli. En við skulum leita hátt og lágt að öðrum úrræðum. Og það er eins og atlaga að frelsi okkar og tilverurétti ef rætt er um að „þrengja að einkabílnum“– sem nota bene tekur alltaf meira og meira pláss.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Glæsilegur dagur íslenskra kvenna – baráttunni fyrir frelsi og réttlæti lýkur aldrei

Svarthöfði skrifar: Glæsilegur dagur íslenskra kvenna – baráttunni fyrir frelsi og réttlæti lýkur aldrei
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Laxness á náttborðinu

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Laxness á náttborðinu