fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Björn kemur dómsmálaráðherra til varnar – Segir RÚV „leita logandi ljósi að stjórnmálamönnum“ sem vilji afsögn Sigríðar

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 23. janúar 2018 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins.

Björn Bjarnason kemur Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, til varnar í pistli á heimasíðu sinni í dag. Öll spjót hafa staðið á Sigríði eftir að Hæstiréttur dæmdi hana brotlega gagnvart lögum í Landsdómsmálinu. Þá birti Stundin ný gögn í gær sem sýndu að Sigríður virti að vettugi lögfræðiráðgjöf þess lútandi að hún þyrfti að breyta tillögu sinni áður en hún lagði hana fram til Alþingis, ellegar gæti það komið henni í koll.

Björn setur enn og aftur út á fréttaflutning RÚV, segir miðilinn leita „logandi ljósi“ að stjórnmálamönnum sem vilji að hún segi af sér, og áfram verði róið á þau mið, þar sem lítið hafi veiðst í morgun. Er Björn að vísa til ummæla Páls Magnússonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Rás 2 í morgun, þar sem Páll varði gjörðir dómsmálaráðherra og sagði út í hött að krefjast afsagnar ráðherra vegna málsins.

Í sama streng tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem vildi þó að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins færi yfir málið.

Kenning Björns um vinnubrögð RÚV verður að teljast ólíkleg, miðað við þá viðmælendur sem Rás 2 valdi sér í morgun, þar sem engin skortur er á þingmönnum sem krefjast afsagnar dómsmálaráðherra.

Þá vitnar Björn í pistil Jóns Steinars Gunnlaugssonar sem birtist á Eyjunni í morgun og segir Jón Steinar réttilega halda því fram að dómaraelítan vilji ráða hverjir skipi embætti dómara, þetta sé barátta um völd.

 

Björn vitnar einnig í orð Guðna Th. Jóhannessonar forseta, sem sagði í yfirlýsingu þann 8. Júní vegna skipunar dómara í landsrétt:

„Hinn 6. júní ákvað ég að afla staðfestingar á þeirri atvikalýsingu sem fram hafði komið í fjölmiðlum og mér höfðu einnig borist eftir öðrum leiðum. Einnig vildi ég vita hvort skrifstofa Alþingis og lögfræðingar þar teldu hugsanlegt við nánari athugun að ekki hefði verið staðið rétt að atkvæðagreiðslunni 1. júní. Ég fól forsetaritara að afla upplýsinga frá skrifstofu Alþingis um tilhögun  atkvæðagreiðslunnar, aðdraganda hennar og umræður á undirbúningsfundum þingmanna, með hliðsjón af áðurnefndu bráðabirgðaákvæði dómstólalaga og ákvæðum þingskapa um atkvæðagreiðslur.“

Björn vitnar í niðurstöðu Guðna og segir hana ótvíræða:

„Með hliðsjón af öllum þeim málavöxtum sem hér hafa verið raktir komst ég að þeirri niðurstöðu að mistök hefðu ekki átt sér stað við undirbúning og tilhögun

atkvæðagreiðslunnar 1. júní  [um skipun dómara] og hún hefði verið í samræmi við lög, þingvenju og þingsköp.“

 

Þá segir Björn að lokum, að það myndi kóróna fáránleikann, kæmist stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðherrann bæri einn sök:

„Einsdæmi er að forseti Íslands óski eftir sérstakri athugun á vinnubrögðum alþingis áður en hann ritar undir erindi sem þaðan berst. Kæmist stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis nú að því að öll „sök“ í þessu máli hvíldi á herðum dómsmálaráðherra yrði það aðeins til að kóróna fáránleikann í málflutningi þeirra sem krefjast afsagnar ráðherrans.  Það var niðurstaða rannsóknar á vegum alþingis að beiðni forseta Íslands að réttilega hefði verið staðið að gerð tillögunnar til forseta. Ætlar þingnefnd nú að éta það ofan í sig?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki