Meirihluta Íslendinga, eða 56%, þykir mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá á næsta kjörtímabili. Þetta eru ríflega tvöfalt fleiri en þeir sem þykir málið lítilvægt, 23,5%. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar MMR. Um fimmtungur svarenda sagðist vera á báðum áttum í afstöðu sinni til mikilvægis þess að að Ísland fengi nýja stjórnarskrá á næsta kjörtímabili.
Höfuðborgarbúar finnst stjórnarskráin mikilvægara
Töluverðan mun mátti sjá þegar afstaða til nýrrar stjórnarskráar á næsta kjörtímabili var skoðuð eftir lýðfræðihópum og stjórnmálaskoðun. Þegar horft var til búsetu mátti sjá að Íslendingar sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að þykja það mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá, 61% en þeim sem búsettir voru á landsbyggðinni, 47%.
Eins kom í ljós að því lægri heimilistekjur sem svarendur höfðu því mikilvægara þótti þeim að fá nýja stjórnarskrá. Þannig fannst 64% svarenda með heimilistekjur undir 400 þúsund það vera mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá á næsta kjörtímabili, samanborið við 51% þeirra sem höfðu milljón eða meira í heimilistekjur.
Ef munur var skoðaður eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, kom í ljós að 91% af stuðningsfólki Samfylkingarinnar, 92% af stuðningsfólki Pírata en einungis 15% af stuðningsfólki Sjálfstæðisflokksins þótti það mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá. Af stuðningsfólki annarra flokka voru 76% Vinstri grænna, 40% Framsóknar og 39% Viðreisnar sem þótti það mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá fyrir næsta kjörtímabil.
Könnunin var gerð dagana 26.- 28. september 2017, 1012 einstaklingar 18 ára og eldri valdir af handahófi úr þjóðskrá svöruðu.