fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
Eyjan

Sigurður Ingi óskar Sigmundi alls hins besta: Göngum sameinuð og erum eftirsóknarverður samstarfsflokkur

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 25. september 2017 14:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins. Mynd/Sigtryggur Ari

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins þakkar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrrverandi formanni og öllum þeim sem yfirgefið hafa flokkinn á síðasta sólarhring fyrir samstarfið og óskar þeim alls hins besta. Segir Sigurður Ingi í opnu bréfi til Framsóknarmanna að við núverandi aðstæður sé best að taka stöðuna ákveða hvernig hugsjónum og markmiðum flokksins verði best náð til heilla og hagsbóta fyrir alla landsmenn. Eyðir Sigurður Ingi ekki mörgum orðum í þá sem yfirgefið hafa flokkinn:

Atburðarrás síðustu daga hefur valdið umróti í flokknum sem hefur orðið til þess að gott fólk hefur valið að yfirgefa okkar trausta og gamalgróna flokk. Ég vil þakka þeim fyrir störf í þágu flokksins og óska þeim alls hins besta. Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum í þá atburði sem urðu til þess að fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins ákvað að segja skilið við flokkinn. Þá atburði þekkjum við vel og höfum eðlilega á þeim mismunandi skoðanir,

segir Sigurður Ingi í bréfi sínu. Leggur hann áherslu á að ágreiningsmál verði leidd til lykta með lýðræði að leiðarljósi. Egill Helgason fjölmiðlamaður reifaði þá kenningu hér á Eyjunni hvort brotthvarf Sigmundar Davíðs úr Framsóknarflokknum yrði til þess að flokkurinn opnaðist í báða enda, vekur því athygli þegar Sigurður Ingi segir í bréfinu:

Í þingflokkum eru öflugir einstaklingar og þeir sem hafa verið tilbúnir til að vinna saman hafa gert það mjög vel. Þingflokkurinn hefur áunnið sér traust og er eftirsóknarverður samstarfsflokkur.

Mikilvægt að ganga sameinuð til kosninga

Óskar hann jafnframt eftir frambjóðendum á lista Framsóknarflokksins í kosningunum 28. október næstkomandi:

Góður árangur og samvinna byggist á því að fólkið í flokknum taki þátt í flokksstarfi og móti stefnu til framtíðar. Þannig erum við sterkust og þannig náum við árangi sem heild.  Staða Framsóknarflokksins er sterk og mikilvægt að við göngum sameinuð til kosninga. Við höfum skyldum að gegna. Of mörg mál hafa legið í láginni hjá síðustu ríkisstjórn sem þola enga bið. Það er okkar að hlúa að þeim sem minna eiga og byggja upp nauðsynlega innviði í velferðarkerfinu. Kjósendur vilja trausta stjórnmálamenn og flokka sem sýna ábyrgð í störfum sínum. Kosningarnar 28. október munu öðru fremur snúast um traust og stöðugleika.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík