fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
Eyjan

Eggert Valur: Málið verði sent til íbúanna

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 20. september 2017 20:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eggert Valur Guðmundsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.

Eggert Valur Guðmundsson skrifar:

Þessar nýjustu hugmyndir um uppbyggingu á miðbæjarreitnum á Selfossi, sem hafa verið kynntar og verið í umræðunni að undanförnu hafa margar hliðar. Annars vegar er samningur sem meirihluti D lista samþykkti fyrir stuttu við Sigtún þróunarfélag, og hins vegar deiliskipulagið sjálft.

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar greiddu atkvæði gegn samningi um verkefnið við Sigtún þróunarfélag, vegna þess einfaldlega að við töldum  samkomulagið ekki gott fyrir sveitarfélagið, þrátt fyrir þá fyrirvara sem í samningnum eru. Hér er verið tala um milljarða fjárfestingu sem við kjörnir fulltrúar höfum ekkert séð um hvernig muni verða fjármögnuð.

Einnig finnst mér ámælisvert af meirihluta bæjarstjórnar sem er að keyra þetta breytta skipulag í gegnum kerfið, að ekki hafi verið framkvæmt  verðmat af hlutlausum aðilum á þeim lóðum sem eigendurnir ( íbúar sveitafélagsins) eru að leggja til þessa verkefnis. Svo má nefna að það er tiltekið í aðalskipulagi Svf Árborgar að leitast skuli við að hver byggðarkjarni sveitarfélagsins skuli njóta sinna sérstöðu, eftirlíking á gömlum húsum sem stóðu hingað og þangað um landið getur að mínum dómi seint fallið undir sérstöðu Selfossbæjar.

Í ljósi þess hve þessi áform hafa verið umdeild, lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu á síðasta fundi bæjarstjórnar, um að málið yrði sent  til íbúana til ákvörðunar í almennri íbúakosningu. Niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu var sú að meirihluti Sjálfstæðisflokksins með aðstoð bæjarfullltrúa Framsóknarflokksins kolfelldu tillöguna.

Það er mín skoðun að svona mál eigi vel heima í almennri kosningu og þarf alls ekki að vera flókin framkvæmd. Ég er talsmaður þess að uppbygging hefjist á þessu svæði og við höfum í dag gildandi skipulag sem almenn sátt var um á sínum tíma. Ég hef ekki góða tilfinningu fyrir þessu Sigtúnsverkefni, og óttast að þetta muni að lokum enda í fanginu á íbúum sveitarfélagsins.

Birtist fyrst í Suðra. Smelltu hér til að lesa blaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík