fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Eyjan

Sveinn: Ég var beittur þrýstingi til að skrifa undir meðmælabréf fyrir Hjalta Sigurjón

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 18. september 2017 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Eyjólfur Matthíasson fyrrverandi yfirmaður Hjalta Sigurjóns Haukssonar hjá Kynnisferðum segir að yfirmenn hjá Kynnisferðum hafi beitt sig þrýstingi til að skrifa undir meðmælabréf fyrir Hjalta, segir Sveinn í yfirlýsingu til fjölmiðla að hann hafi skrifað undir bréf sem hafi verið ætlað til að hjálpa Hjalta að sækja um starf hjá olíudreifingarfyrirtæki og það hafi ekki verið ætlað að fylgja umsókn hans um uppreist æru.

Yfirlýsingu Sveins má lesa hér að neðan:

Fullyrt hefur verið í fjölmiðlum að ég, undirritaður, hafi veitt Hjalta Sigurjóni Haukssyni meðmæli í tengslum við umsókn hans um uppreist æru. Þær upplýsingar eru ekki réttar.

Fyrir nokkrum árum starfaði Hjalti Sigurjón sem bifreiðarstjóri hjá Kynnisferðum, meðan ég gegndi þar stöðu verkefnastjóra. Árið 2013, þegar í ljós kom að hann var dæmdur barnaníðingur, var honum sagt upp störfum. Þáverandi framkvæmdastjóri fór í kjölfarið fram á það við mig að hann yrði endurráðinn. Þeim fyrirmælum neitaði ég að fylgja. Nokkrum vikum síðar, í kjölfar fréttaflutnings af Hjalta Sigurjóni, fékk ég svo skilaboð frá stjórnendum fyrirtækisins um að ég réði þessu máli sjálfur og taldi ég því þá lokið.

Nokkrum mánuðum síðar sótti Hjalti Sigurjón aftur um vinnu og framvísaði í því sambandi hreinu sakavottorði. Þáverandi rekstrarstjóri Hópbifreiða Kynnisferða hafði ekki verið upplýstur um sögu þessa máls, eða sögu Hjalta Sigurjóns, en ég gerði honum grein fyrir afstöðu minni að Hjalti Sigurjón ætti ekki að starfa við farþegaflutninga sökum fortíðar sinnar og tók hann undir þá niðurstöðu.

Þáverandi framkvæmdastjóri kom í kjölfarið að máli við okkur og spurði hvort ekki væri eitthvað sem við gætum gert fyrir Hjalta Sigurjón, en við ítrekuðum, með vísan í fortíð hans, að það væri alls ekki ráðlegt. Í kjölfarið fór þáverandi stjórnarformaður fyrirtækisins þess á leit við mig að ég skrifaði fyrir Hjalta Sigurjón meðmælabréf. Ég varð ekki við því, en að einhverjum tíma loknum kom Hjalti Sigurjón tl mín og bað mig um að skrifa undir meðmælabréf sem hann hafði tilbúið. Ég las bréfið, sem var í heildina ekki mikið meira en tvær línur og á þá leið að hann væri stundvís og góður bílstjóri.

Þetta stutta meðmælabréf var sannleikanum samkvæmt. Sökum þess þrýstings sem ég hefði verið beitur af yfirmönnum mínum skrifaði ég undir það. Það bréf var ætlað til stuðnings umsóknar hans um starf hjá olíudreyfingarfyrirtæki og lofaði hann því að bréfið yrði ekki notað til umsóknar um önnur störf.

Afrit af meðmælabréfinu sem Hjalti Sigurjón skilaði inn vegna umsóknar sinnar um uppreist æru barst mér ekki fyrr en laugardaginn 16. september s.l. frá ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Ég ritaði ekki undir það meðmælabréf og kannast ekki við þá umsögn sem mér er ætluð.

Ég neita því alfarið að ég hafi ritað meðmælabréf fyrir Hjalta Sigurjón vegna umsóknar hans um uppreist æru og mér þykir miður hvernig sumir fjölmiðlar hafa reynt að bendla mig við þetta mál og svert æru mína í kjölfarið. er það ósk mín að þessi yfirlýsing hreinsi nafn mitt og fer ég þess á leit við fjölmiðla, almenning og stjórnvöld að ég verði ekki frekar bendlaður við þetta mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?