fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Trump: Munum ekki yfirgefa NAFTA „á þessari stundu“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 27. apríl 2017 09:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump forseti Bandaríkjanna fann fríverslunarsamningum á borð við NAFTA allt til foráttu í kosningabaráttu sinni. Mynd/EPA

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada og Enrique Pena Nieto forseta Mexíkó að Bandaríkin myndu ekki ganga úr NAFTA, fríverslunarsamningi landanna þriggja, „á þessari stundu“. Þetta sagði Trump í símtölum við ráðamenn Norður-Ameríku í gærkvöldi, hringdi hann í þá í kjölfar þess að orðrómur fór af stað um að Trump hygðist láta Bandaríkin yfirgefa NAFTA. Bandaríska dagblaðið Washington Post greinir frá þessu í dag.

Málið er umdeilt í Bandaríkjunum og hafa margir framámenn innan Repúblikanaflokksins, flokks Trump, gangrýnt hugmyndir um að yfirgefa NAFTA harðlega. Trump hamraði á því í kosningabaráttu sinni að NAFTA væri að flytja störf úr landi og að fríverslunarsamningum ætti að slíta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær