fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Þorsteinn ósammála Páli: Ekki hægt að halda því fram að verið sé að svelta spítalann

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 27. apríl 2017 10:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans og Þorsteinn Víglundsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Samsett mynd/DV

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra gagnrýnir málflutning stjórnenda Landspítalans, þar á meðal Páls Matthíassonar forstjóra og segir að ekki sé hægt að halda því fram að verið sé að svelta spítalann. Segir Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið í dag að ljóst sé að fjölmörg tækifæri séu til staðar til að gera betur í rekstri Landspítalans, til dæmis mætti hraða útskrift sjúklinga, draga úr yfirvinnu, fjölga fullum stöðugildum ásamt fleiru.

Páll sagði að sér hefði brugðið við að sjá ríkisfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára, en þar er gert ráð fyrir að framlög til sjúkrahúsþjónustu aukist um ríflega 16 milljarða króna á tímabilinu. Í ávarpi sínu á árs­fundi spít­al­ans á mánudaginn sagði Páll á spítalinn væri undirfjármagnaður og að árlega færi mikil orka í baráttu við ríkisvaldið:

Hvernig má það vera að vel mein­andi stjórn­völd neiti að horfa á blá­kald­ar staðreynd­ir,

sagði Páll. Fimm milljarðar þurfi til Landspítalans á ríkisfjármálaáætlun til að hann geti sinnt þeim verkefnum sem honum sé ætlað.

Staðreynd að raunútgjöld hafi stóraukist

Þorsteinn segir að staðreyndin sé sú að raunútgjöld til Landspítalans hafi verið stóraukin á undanförnum árum:

Það er augljóst að verið er að auka raunútgjöld til spítalans og þegar horft er yfir lengra tímabil má sjá að það er búið að endurreisa fjármögnun spítalans úr þeirri miklu lægð sem var hér eftir efnahagshrun. Það hefur orðið veruleg aukning á raunútgjöldum til LSH á undanförnum árum og stefnt er að því að svo verði áfram,

sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið í dag. Þar að auki muni muni nýr spítali auka hagræði Landspítalans til muna og að enginn deili um mikilvægi þess að setja heilbrigðisþjónustu í forgang:

…er ekki hægt að halda því fram að verið sé að svelta Landspítalann, eins og stjórnendur spítalans hafa haldið fram. Það er ljóst að það eru fjölmörg tækifæri til þess að gera enn betur í rekstri LSH. Stjórnendur spítalans fóru m.a. ágætlega yfir það á fundi með fjárlaganefnd í desember og nefndu sem dæmi áform um að hraða útskrift sjúklinga, draga úr yfirvinnu, fjölga fullum stöðugildum og svo mætti áfram telja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær