Ragnheiður Elín Árnadóttir fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra er komin í stjórn Landsvirkjunar. Ragnheiður var skipuð af Benedikt Jóhannessyni fjármála- og efnahagsráðherra á aðalfundi Landsvirkjunar í dag.
Haraldur Flosi Tryggvason lögmaður og fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, koma líka ný inn í stjórnina en þar sitja áfram Álfheiður Ingadóttir fyrrverandi ráðherra Vinstri grænna og Jónas Þór Guðmundsson.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Ásta Björg Pálmadóttir, Páley Borgþórsdóttir, Lárus Elíasson, Ragnar Óskarsson og Albert Svan Sigurðsson.