fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
Eyjan

Skipar starfshóp til að seinka klukkunni

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 23. nóvember 2017 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra. Samsett mynd/Sigtryggur Ari

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna hér á landi til samræmis við gang sólar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Miðað við sólargang og legu landsins er klukkan á Íslandi of fljót. Nokkuð hefur verið fjallað um að þessi munur skekki þær upplýsingar sem lífsklukkan nýtir til að samhæfa starfsemi líkamans eftir vöku- eða svefntíma. Þetta valdi svokallaðri klukkuþreytu sem hafi neikvæð áhrif á svefnvenjur sem aftur auki líkur á ýmsum heilbrigðisvandamálum, s.s. offitu, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdómum. Tillaga til þingsályktunar um seinkun klukkunnar á Íslandi um eina klukkustund var lögð fram á Alþingi árið 2015 en hlaut ekki efnislega umfjöllun.

Formaður starfshópsins er Ásthildur Knútsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Aðrir í hópnum eru Björg Þorleifsdóttir, lektor við læknadeild Háskóla Íslands, Erla Björnsdóttir sálfræðingur, stofnandi og stjórnarformaður fyrirtækisins Betri svefns og Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis.

Starfshópurinn á að skila ráðherra minnisblaði með niðurstöðum sínum fyrir 1. febrúar næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“