fbpx
Fimmtudagur 20.nóvember 2025
Eyjan

Óður til kosninga

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 8. október 2017 16:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Pandora Baldursdóttir skrifar:

Nú er komið haust.  Það kólnar í lofti, haustlægðirnar koma yfir landið hver á fætur annarri, gróðurinn tekur á sig sinn fallega lit sem einkennir árstíðina og börnin fara aftur í skólann sinn. Já og svo eru auðvitað líka kosningar. Þegar ganga á til kosninga í þriðja sinna sinn á aðeins fimm árum hlýtur að vera kominn tími til þess að staldra aðeins við og velta vöngum. Af hverju stafar þessi óstöðugleiki í stjórnmálunum?

Enn á ný hefur almenningur risið upp og látið í sér heyra og skilaboðin eru skýr. Við viljum breyta stjórnmálamenningunni. Við viljum betri vinnubrögð í stjórnmálunum, meira gagnsæi í stjórnsýslunni og við gerum þá kröfu að stjórnmálamenn starfi með hag almennings að leiðarljósi. Þjóðin á skilið að stjórnmálamenn starfi af heilum hug að því að byggja brú á milli hennar og stjórnmálanna, að stjórnmálamenn vinni af heilum hug að því að auka traust hennar til Alþingis.

Að skipta út stjórnmálamönnum eða stjórnmálaflokkum mun ekki breyta miklu nema grunngildum stjórnmálanna sé breytt, stjórnmálamenningunni sé breytt. Allir flokkar gefa fögur loforð í aðdraganda kosninga og flestir gera það af góðum hug og vilja til þess að bæta samfélagið. Þegar á hólminn er komið og flokkar jafnvel komnir í ríkisstjórn virðist oftar en ekki illmögulegt að standa við gefin loforð ýmist vegna „pólitísks ómöguleika“ eða einhverrar kerfislægrar tregðu.

Það ætti að vera krafa að stjórnmálamenn standi við gefin loforð. Ef það er ekki gert þá ætti almenningur að hafa óskoraðan rétt til þess að vera upplýstur um af hverju það er ekki hægt. Gagnsæi er lykilatriðið. Það þarf að eyða þeirri kerfislægu hneigð stjórnvalda að leyna upplýsingum fyrir almenningi til þess að vernda eigin hagsmuni. Alþingismenn starfa í umboði þjóðarinnar og því skal aldrei gleyma.

Í framtíðinni munu stjórnmál og stjórnsýsla vera gagnsæ og allar upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda munu vera tiltæk án undandráttar. Almenningur mun hafa tryggan aðgang að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða sýsla með.

Til þess að stuðla að þessari framtíð vil ég hvetja alla kjósendur, sérstaklega ungt fólk, til þess að taka framtíð sína í eigin hendur og nýta kosningarétt sinn.

Höfundur greinar: Eva Pandora Baldursdóttir, þingmaður Pírata í Norðvesturkjördæmi.

Birtist fyrst í Vesturland. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Jöfnuðurinn einn tryggir lýðræði og mannréttindi

Sigmundur Ernir skrifar: Jöfnuðurinn einn tryggir lýðræði og mannréttindi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Guðni Ómarsson: Gjaldmiðillinn stórt atriði sem stendur í vegi fyrir lægri langtímavöxtum – tvær hliðar á þeim pening

Jón Guðni Ómarsson: Gjaldmiðillinn stórt atriði sem stendur í vegi fyrir lægri langtímavöxtum – tvær hliðar á þeim pening
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar skrifar: Ísland sofandi á meðan heimurinn vaknar

Sigurður Hólmar skrifar: Ísland sofandi á meðan heimurinn vaknar