40,2% landsmanna vill að Ísland gangi inn í Evrópusambandið, er það nokkur fjölgun frá því í febrúar á þessu ári þegar 33,9% landsmanna vildu ganga í ESB. Töluverður meirihluti, eða 59,8% landsmanna, er á móti inngöngu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Gallup sem gerð var fyrir samtökin Já Íslands í september síðastliðnum og greint er frá á vef Kjarnans. Mikill munur er á afstöðu landsmanna eftir aldri, menntun, búsetu og eftir því hvaða stjórnmálaflokk viðkomandi styður. Athygli vekur að meirihluti stuðningsmanna Vinstri grænna, eða 51% styður aðild Íslands að ESB, en það er andstætt stefnu flokksins.
Gjá milli Reykjavíkur og landsbyggðar
Karlar eru jákvæðari gagnvart aðild að ESB en konur, sem og yngra fólk. Í aldurhópnum 18 til 24 ára segjast 55% myndu örugglega eða sennilega greiða atkvæði með inngöngu Íslands í ESB. Í aldurshópnum 55 ára og eldri myndu hins vegar aðeins 33% greiða atkvæði með inngöngu Íslands í ESB.
Íbúar Reykjavíkur eru hlynntari inngöngu en íbúar annarra sveitarfélaga. Slétt 50% Reykjavíkinga vill ganga í ESB en 40% íbúa annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þegar komið er út á land mælist stuðningur við inngöngu Íslands í ESB aðeins 30%.
Munur milli tekjuhópa
Þegar litið er til tekjahópa kemur í ljós að einstaklingar sem tilheyra tekjuhærri hópum er hlynntara inngöngu Íslands í ESB en aðrir. 48% þeirra sem tilheyra hópunum með fjölskyldutekjur á bilinu 550 til 799 þúsund krónur á mánuði og með meira en milljón krónur í fjölskyldutekjur á mánuði, vilja ganga í ESB, en aðeins 31% þeirra með fjölskyldutekjur á bilinu 400 til 599 þúsund krónur á mánuði. 53% háskólamenntaðra vilja ganga í ESB en aðeins 32% þeirra sem eru með grunnskólapróf.
93% stuðningsmanna Samfylkingarinnar vilja ganga í ESB, 79% Pírata og 51% stuðningsmanna Vinstri grænna vilja ganga í ESB. Stuðningurinn er minnstur hjá kjósendum Flokks fólksins, 29%, Sjálfstæðisflokksins, 27% og Framsóknarflokksins, 24%.
Könnunin var gerð dagana 11-24. september síðastliðinn. Um var að ræða netkönnun og úrtakið var 1.435 manns um allt land. Allir þátttakendur voru 18 ára og eldri og voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Þátttökuhlutfall var 59,5%.