„Við lofum engu nema við séum búin að finna út úr því hvernig við getum staðið við það. Þetta er í takt við áherslur Pírata á ábyrg og gagnsæ vinnubrögð. Við tökum ekki þátt í loforðakapphlaupi. Það er ódýr leið stjórnmálamanna til að afla sér atkvæða en dýr leið fyrir samfélagið.“
Þetta kemur fram í skeyti frá Pírötum sem hafa boðað til blaðamannafundar á morgun kl 11 á Bryggjunni Brugghúsi við Grandagarð í Reykjavík. Þar segir enn fremur:
„Fyrsta setningin í grunnstefnu Pírata er: „Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.“
Þetta er ekki alltaf vinsæl stefna því hún krefst tíma, vinnu og úthalds við að skapa umhverfi sem fólk vill helst fá strax. Við víkjum samt ekki frá þessu grunngildi og höfum lagt mikinn metnað í að vanda okkur við að koma saman áherslumálum okkar og fara ítarlega yfir hvernig við fjármögnum það sem við viljum koma í verk.
Þessa vinnu og afrakstur hennar munum við kynna á morgun. Þannig viljum við gefa kjósendum kleift að taka upplýsta ákvörðun.“