fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
Eyjan

Kári segir stjórnmálaástandið dapurlegt: „Barnalegt og heimskulegt“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 27. september 2017 16:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson. Mynd/Sigtryggur Ari

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir það barnalegt og heimskulegt hjá Bjartri framtíð að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu vegna trúnaðarbrests í tengslum við uppreist æru, það hafi verið margar aðrar ástæður til að rjúfa ríkisstjórnina.

Segir hann í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í helgarblaði DV að hann hefði viljað að ríkisstjórnin hefði endurskoðað fimm ára áætlun ríkisfjármála og sett aukið fé í heilbrigðiskerfið og menntakerfið.

Hvernig lýst þér á pólitíska ástandið eins og það er þessa stundina?

Mér finnst það býsna dapurlegt. Ég átta mig ekki almennilega á því hvernig menn settu saman þessa ríkisstjórn sem nú var að segja af sér. Ég átta mig heldur ekki almennilega á því á hvaða forsendum menn rufu þessa ríkisstjórn. Mér finnst að að baki þessu búi heldur moðkenndar hugsanir. Svo maður fari ekki út í að ræða þessi barnaníðingsmál sem eru í sjálfu sér alltof flókin  Ég viðurkenni að vísu fúslega að ef annar hvor þessara níðinga sem menn eru að tala um núna hefði veist að afkomendum mínum þá hefði ég ósköp einfaldlega drepið hann með berum höndum. En við búum í réttarríki og við erum ekki með dauðarefsingu. Einn af hornsteinum þessa réttarríkis er að þegar menn eru búnir að taka út sína refsingu þá eigi þeir að fá mannréttindi. Að vísu finnst manni gjörsamlega fáránlegt  að kalla eitthvað í þessu „uppreist æru“ vegna þess að maður sem hefur níðst á barni fær aldrei æru sína aftur og á ekki að fá hana aftur. Ekki í þessu lífi og ekki í neinu lífi.

Það hefði mátt taka á þessum málum á annan hátt en gert var af hálfu stjórnvalda en þetta er ekki ástæða  til að rjúfa ríkisstjórn. Mér finnst það barnalegt og heimskulegt. Þarna láta menn skrýtnar tilfinningar bera sig ofurliði. En ég hefði getað séð margar aðrar ástæður til að rjúfa þessa ríkisstjórn. Ég hefði viljað að þessi ríkisstjórn hefði endurskoðað fimm ára áætlun ríkisfjármála og sett aukið fé í heilbrigðiskerfið og menntakerfið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík