fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
Eyjan

Flóttinn úr Framsókn heldur áfram: Formaður Framsóknarkvenna yfirgefur flokkinn

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 27. september 2017 13:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Kolbrún Árnadóttir.

Anna Kolbrún Árnadóttir, formaður Landssambands Framsóknarkvenna, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum. Anna Kolbrún síðustu í langri röð meðlima Framsóknarflokksins sem hafa yfirgefið flokkinn með látum í kjölfar þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, yfirgaf flokkinn á sunnudag og tilkynnti að hann myndi stofna nýtt framboð.

Anna Kolbrún segir í bréfi sem hún sendi á Sigurð Inga Jóhannsson formann og framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins að hönnuð atburðarrás á flokksþinginu í Háskólabíó, þar sem Sigmundur laut í lægra haldi fyrir Sigurði Ingaí formannskjöri, hafi markað djúp spor en hafi aðeins verið forsmekkurinn að því sem kom í kjölfarið:

Það er ekki létt að kveðja. En rangar ákvarðanir hafa verið teknar undanfarið ár. Sem lítið en skýrt dæmi má nefna að í hátíðarútgáfu Tímans, sem gefin var út í tilefni 100 ára afmælis flokksins, var varla minnst einu orði á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, eins og ætlunin hafi verið að reyna að gleyma öllu því góða sem hann hefur unnið fyrir flokkinn og fólkið í landinu. Að við ættum bara að gleyma manninum Sigmundi Davíð. Nú hefur hann stigið skrefið til fulls og yfirgefið flokkinn, tekið skrefið sem ákveðnir aðilar innan flokksins hömuðust við að fá hann til að taka, ryðja honum úr vegi.

Uppfært 14:20 – Linda Jónsdóttir varaformaður Framsóknarfélags Reykjavíkur hefur einnig sagt sig úr flokknum, lýsir Linda yfir stuðningi við Sigmund Davíð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Dýr mundi Trump allur, ef svo skyldi æra hans
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi

Segir þetta vera leiðina til að lækka vexti á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð

Jón Guðni Ómarsson: Lánaformið á Íslandi keimlíkt því sem er í Noregi og Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík