fbpx
Þriðjudagur 22.júlí 2025
Eyjan

Jón Gnarr skráði sig í Sjálfstæðisflokkinn

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Sunnudaginn 17. september 2017 14:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr í lopapeysu.

„Við ættum að hætta að taka hluti svona óskaplega alvarlega. Það skiptir álíka miklu máli hver er borgarstjóri í Reykjavík og hver er forstjóri Toyota. Í rauninni skiptir það engu máli. Við getum sagt: Toyota er miklu betra eftir að Úlfar tók við – en það er samt ekki þannig. Toyota er bara Toyota og bílamarkaðurinn stjórnast af svo mörgu öðru en forstjóranum.“

Þetta segir Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri í helgarviðtali við DV. Honum finnst fólk taka íslensk stjórnmál alltof persónulega og of bókstaflega.

„Þetta minnir mig svolítið á það þegar fólk horfði á Dallas í uppnámi og spurði: Hvað er eiginlega að honum J.R. að koma svona fram við Sue Ellen!

Stjórnmál snúast fyrst og fremst um samskipti, hluti sem erum eða ættum að gera saman sem heild. Ég á erfitt með að draga fólk í pólitíska dilka. Ég hef aldrei náð því að fólk sé fífl og fávitar af því það er í Framsóknarflokknum. Mér finnst það ekki. Eða að allir sem eru í VG eða Sjálfstæðisflokknum séu á einhvern ákveðinn hátt. Það er bara ekki þannig.

Ég hef sjaldnast haft afgerandi afstöðu gagnvart stjórnmálaflokkum. Þar hefur verið fólk sem mér hefur líkað við og annað fólk sem mér hefur ekki líkað við. Stjórnmálaflokkar eru soldið eins og knattspyrnulið. Fyrir mörgum árum skráði ég mig í Sjálfstæðisflokkinn til að styðja Gísla Martein í prófkjöri. Ég vissi ekkert hvað prófkjör var. Gísli var bara strákur sem ég hafði kynnst á RÚV og kunnað vel við og mig langaði til að styðja hann. Í vinahópnum bauð Guðrún Ögmundsdóttir sig fram. Mér hefur alltaf fundist hún yndisleg og vildi allt gera til að styðja hana svo ég skráði mig þá í Samfylkinguna.

Í áramótaskaupi var ég eitt sinn fenginn til að leika stjórnmálamann í borginni sem átti að vera hluti af Tjarnarkvartettinum. Ég hafði ekki hugmynd um hvaða fyrirbæri þessi kvartett væri. Ég vissi hver Gísli Marteinn var, en ég vissi ekkert um borgarpólitík eða þennan kvartett.

Gísli Marteinn Baldurssonn

Það er ríkjandi tilhneiging að taka hluti óþarflega alvarlega. Lífið er uppfullt af alvöru en svo er allur þessi tilbúni alvarleiki. Eins og þetta fréttablæti okkar Íslendinga. Það eru fréttir á klukkutíma fresti á landi þar sem aldrei gerist nokkur skapaður hlutur. Um leið verður til stórfrétt ef trjónukrabba rekur á fjörur í Berufirði. Það eru vissulega alvarlegir hlutir að gerast í heiminum eins og í Norður-Kóreu og Sýrlandi. En ansi margt sem gerist er ekki gríðarlega alvarlegt.

Það sem mér finnst skipta máli er að gera eitthvað óvenjulegt, koma skemmtilega á óvart og vera öðruvísi. Það mætti vera miklu meira af því. Mér finnst hlutirnir vera að fara æ meira í það að allt sé eins. Og þá er algjörlega lífsnauðsynlegt að finna upp á surprise-partíum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vaka stýrir COLLAB

Vaka stýrir COLLAB
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við

Áslaug Arna aftur komin á laun þrátt fyrir námsleyfi – Fær 3,1 milljónir þar til varamaður tekur við
Eyjan
Fyrir 1 viku

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt

710 klukkustundir og 10 mínútur af þingfundum á árinu en bara 35 frumvörp af 131 samþykkt