fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Eyjan

Íslendingar telja efnahagsstöðu landsins góða

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 10. maí 2017 14:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV

Rúm 65% Íslendinga telja efnahagsstöðuna á Íslandi í dag vera góða en 35% telja að hún sé slæm. Þetta sýnir ný könnun MMR.

Af körlum sögðu 70% efnahagsstöðuna vera góða en 60% kvenna.

Tæp 57% svarenda töldu að efnahagsstaðan á Íslandi verði svipuð og í dag eftir 6 mánuði. Rúm 16% töldu að efnahagsstaðan yrði betri eftir 6 mánuði en 27% að hún yrði verri.

Konur, 28%, reyndust ívið líklegri en karlar, 26%, til að telja að efnahagsstaðan muni versna næstu 6 mánuði. Af körlum töldu 19% að efnahagsástandið myndi batna, samanborið við 14% kvenna.

Hærra hlutfall karla en kvenna taldi efnahagsstöðuna á Íslandi í dag vera góða. Af körlum sögðu 10% efnahagsstöðuna vera mjög góða og 60% frekar góða samanborið við 5% kvenna sem sögðu efnahagsstöðuna mjög góða og 55% frekar góða.

Aldurshópurinn 18-29 ára reyndist líklegri en aðrir aldurshópar til að segja efnahagsstöðuna slæma. Í aldurshópnum 18-29 ára töldu 47% að efnahagsstaðan væri slæm, þar af töldu 16% að efnahagsstaðan væri mjög slæm. Aldurshópurinn 68 ára og eldri var líklegri en aðrir til að telja efnahagsstöðuna vera mjög góða eða 16%. Til samanburðar töldu 8% í aldurshópnum 50-67 ára efnahagsstöðuna vera mjög góða og 6% þeirra í aldurshópunum 30-49 ára og 18-29 ára.

Íslendingar í sérfræðistörfum, 77%, voru líklegri en aðrir til að telja efnahagsstöðuna góða en námsmenn, 49%, voru líklegastir til að telja hana slæma.

Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokks, 87%, og Viðreisnar, 87%, var töluvert líklegra en stuðningsfólk annarra flokka tl að telja efnahagsstöðuna góða. Af stuðningsfólki Pírata töldu 25% að efnahagsstaðan væri mjög slæm.

Eldra fólk svartsýnna

Konur, 28%, reyndust ívið líklegri en karlar, 26%, til að telja að efnahagsstaðan muni versna næstu 6 mánuði. Af körlum töldu 19% að efnahagsástandið myndi batna, samanborið við 14% kvenna.

Þau í aldurshópnum 68 ára og eldri voru nokkuð líklegri til að telja að efnahagsstaðan muni versna á næstu 6 mánuðum eða 34% og aðeins 8% töldu að hún ætti eftir að batna.

Af stjórnendum og æðstu embættismönnum töldu 34% að efnahagsstaðan yrði svipuð eftir 6 mánuði, samanborið við 62% þjónustu-, skrifstofufólks, tækna og þeirra sem ekki voru útivinnandi. 31% stjórnenda og æðstu embættismanna töldu að efnahagsstaðan eigi eftir að batna en 35% að hún muni versna.

Af stuðningsfólki Viðreisnar töldu 44% að efnahagsstaðan eftir 6 mánuði verði svipuð og í dag, samanborið við 63% stuðningsfólks Samfylkingar og 62% Sjálfstæðismanna. Stuðningsfólk Viðreisnar, 29%, og Sjálfstæðisflokks, 27%, reyndist líklegra en aðrir til að telja að efnahagurinn muni batna á næstu 6 mánuðum en einungis 7% stuðningsfólk Samfylkingar taldi að efnahagurinn myndi batna. Stuðningsfólk Vinstri grænna, 35%, var aftur á móti ívið líklegra en aðrir til að telja efnahagsstöðuna eiga eftir að versna næstu 6 mánuði.

Könnunin  fór fram dagana 11.-26. apríl. 926 einstaklingar, 18 ára og eldri, valdir af handahófi tóku þátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi