Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada og Enrique Pena Nieto forseta Mexíkó að Bandaríkin myndu ekki ganga úr NAFTA, fríverslunarsamningi landanna þriggja, „á þessari stundu“. Þetta sagði Trump í símtölum við ráðamenn Norður-Ameríku í gærkvöldi, hringdi hann í þá í kjölfar þess að orðrómur fór af stað um að Trump hygðist láta Bandaríkin yfirgefa NAFTA. Bandaríska dagblaðið Washington Post greinir frá þessu í dag.
Málið er umdeilt í Bandaríkjunum og hafa margir framámenn innan Repúblikanaflokksins, flokks Trump, gangrýnt hugmyndir um að yfirgefa NAFTA harðlega. Trump hamraði á því í kosningabaráttu sinni að NAFTA væri að flytja störf úr landi og að fríverslunarsamningum ætti að slíta.